Hjartateymi

Grundvallarstefna hjartateymis er að veita faglega hjartaendurhæfingu sem byggir á niðurstöðum nýjustu viðurkenndra vísindarannsókna. Í hjartateymi starfa félagsráðgjafi, heilsuþjálfari, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, læknar, næringarfræðingur, sálfræðingur, sjúkraþjálfarar og deildarritari.

Áhersla er lögð heildræna meðferð þar sem meginþættir eru líkamleg þjálfun, aðstoð við sálræna, félagslega og líkamlega aðlögun, meðferð áhættuþátta og fræðsla. Markmiðið er að stuðla að auknu öryggi og lífsgæðum sem vinna má að áfram á eigin spýtur í framhaldi endurhæfingar.

Markvisst er unnið að því í hjartaendurhæfingunni að aðstoða einstaklinga við að þekkja og takast á við sína áhættuþætti fyrir hjartasjúkdómum. Má þar til dæmis nefna ofþyngd, sykursýki, streitu, tóbaksnotkun og hreyfingarleysi. Hægt er að hafa áhrif á þessa þætti til hins betra.

Skipulögð hjartaendurhæfing hefur verið starfrækt á Reykjalundi frá árinu 1982 og hófst þá með formlegum hætti endurhæfing fólks með hjartasjúkdóma hér á landi.

Læknir sendir beiðni á hjartateymi Reykjalundar.

Þegar beiðni hefur verið samþykkt fer hún á biðlista hjartateymis og fær þá viðkomandi skilaboð á heilsuveru þess efnis.

Þegar líða fer að endurhæfingu er viðkomandi boðaður í tveggja daga þverfaglegt mat á heilsufari, líðan og áhugahvöt til endurhæfingar. Einnig er gert þolpróf og/eða aðrar mælingar eftir þörfum.

Samhliða því eða í vikunni áður kemur viðkomandi á skráningarmiðstöð Reykjalundar og svarar spurningalista varðandi sitt heilsufar, líðan og félagslega stöðu.

Í flestum tilfellum getur endurhæfing á hjartasviði hafist í sömu viku eða í vikunni eftir þverfaglega matið.

Endurhæfing á hjartasviði er að öllu jöfnu á bilinu 4-6 vikur. Metið er af fagaðilum teymis í samráði við viðkomandi hver lengd endurhæfingar verður.

Athugið að Reykjalundur er reyklaus stofnun og er reykleysi skilyrði fyrir endurhæfingu á hjartasviði.

Einstaklingar með nýgreindan hjartasjúkdóm eða eftir nýtt inngrip vegna þekkts hjartasjúkdóms.

Einstaklingar sem hafa farið í stofnfrumumeðferð vegna krabbameins.

Hreyfing:

  • Hjartahjól – Þolþjálfun undir eftirliti
  • Leikfimi
  • Vatnsleikfimi
  • Sundþjálfun
  • Tækjasalur
  • Göngur
  • Önnur útivera eftir aðstæðum og veðri

Fræðsla

Námskeið - eftir þörfum.

Slökun

Markmiðs-/Fjölskyldufundir – eftir þörfum.

Símatími hjartateymis: Miðvikudagar kl 14:00-15:00

Hringt er í móttöku Reykjalundar í síma 585-2000 og beðið um samband við hjúkrunarfræðing á hjartateymi vegna símatíma.

Fræðsla og upplýsingar:

Myndbönd:

Meðferðarúrræði:

Félagslegar upplýsingar: