Komudagur

GistihúsFyrir komudag er gott að vera búin að borða morgunmat og taka lyf ef einhver eru. Við komu er besta að láta vita af sér í móttöku við aðalinngang. Við tökum vel á móti þér. Allir fá stundatöflu og þá aðstoð og fylgd sem þeir þurfa. Gera má ráð fyrir að fyrstu dagar fari í viðtöl og rannsóknir.

Viðveruskrá er á hverju meðferðarsviði og þarf að merkja við sig þar þegar mætt er á morgnana og þegar farið er úr húsi á kvöldin.

Hægt er að fá læstan skáp til að geyma búnað og verðmæti.

Reykjalundur er reyk- og vímuefnalaus stofnun. Hvorki er heimilt að neyta tóbaks, rafsígarettna, áfengis, né annarra vímuefna í húsum eða á lóð Reykjalundar. Nær það til alls þess húsnæðis sem nýtt er fyrir starfsemina, lóðarinnar í kring og þess landsvæðis sem nýtt er fyrir göngur og aðra útivist. Óheimilt er að koma á Reykjalund undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Brot á þessum reglum getur leitt til brottvísunar.

Hvað á ég að koma með

Búnaður

  • Inniskór
  • Íþróttabuxur og stuttermabolir
  • Íþróttaskór fyrir innanhúss notkun (ekki með svörtum sólum)
  • Vatnsbrúsi eða plastflaska
  • Sundföt og baðhandklæði (merkja hvort tveggja)
  • Útifatnaður, klæðnaður eftir veðri. Gott að hafa vatns- og vindþéttan galla, húfu, vettlinga og trefil. Mannbroddar að vetri og endurskinsmerki.
  • Léttir gönguskór
  • Persónulegar snyrtivörur án ilmefna
  • Lesgleraugu
  • Hjálpartæki (ef þú notar þau að jafnaði); merkt með nafni og síma

Lyf

  • Lyfjakort
  • Lyf fyrir daginn
  • Innöndunarlyf og viðeigandi búnað (ef þarf)

Búnaðarlisti til útprentunar (pdf)

Búnaður

  • Inniskór
  • Íþróttabuxur og stuttermabolir
  • Íþróttaskór fyrir innanhúss notkun (ekki með svörtum sólum)
  • Vatnsbrúsi eða plastflaska
  • Sundföt og baðhandklæði (merkja hvort tveggja)
  • Útifatnaður, klæðnaður eftir veðri. Gott að hafa vatns- og vindþéttan galla, húfu, vettlinga og trefil. Mannbroddar og endurskinsmerki að vetri.
  • Léttir gönguskór
  • Persónulegar snyrtivörur án ilmefna
  • Handklæði og þvottapoki
  • Fatnaður til skiptanna
  • Lesgleraugu
  • Náttföt
  • Vekjaraklukka
  • Lítið útvarpstæki (ef óskað er)
  • Hjálpartæki (ef þú notar þau að jafnaði); merkt með nafni og síma

Lyf

  • Lyfjakort
  • Lyf fyrir allan dvalartímann

  • Lyf fyrir fyrstu tvo dagana
  • Innöndunarlyf og viðeigandi búnað (ef þarf) fyrir fyrstu tvo dagana

Búnaðarlisti til útprentunar (pdf)

Búnaður

  • Þægileg föt og skór ef komið er í þolpróf eða göngupróf
  • Lesgleraugu
  • Hjálpartæki (ef þú notar þau að jafnaði); merkt með nafni og síma

Lyf

  • Lyfjakort
  • Lyf fyrir daginn
  • Innöndunarlyf og viðeigandi búnað (ef þarf)

Búnaðarlisti til útprentunar (pdf)