Aðstaðan

Afþreying

Setustofur
Víða á Reykjalundi eru setustofur þar sem hægt er að láta fara vel um sig.

Sjónvarp
Tvær sjónvarpssetustofur eru fyrir framan matsal.

Kyrrðarstofa
Mjög falleg kyrrðarstofa er inn af innskriftarmiðstöðinni í Norðurstofu og er fyrir alla sem vilja eiga stund með sjálfum sér.

Netaðgengi
Þráðlaust gestanet næst víða í byggingum Reykjalundar, þó ekki í gistirými í húsum úti á lóð. Auk þess hafa sjúklingar aðgang að tveimur tölvum sem eru í nálægð við móttöku.

Billjard- og fótboltaborð
Billjardborð er staðsett á brú fyrir framan sundlaug og er til afnota til 21:30 mánudaga til fimmtudaga og til 16:30 föstudaga. Fótboltaborð er í tengigangi á fyrstu hæð og er til afnota til 16:30 mánudaga til fimmtudaga og til 15:30 föstudaga.

Pianó
Tvö píanó eru til á Reykjalundi, annað er staðsett í setustofu fyrir framan matsal og er til frjálsra afnota. Hitt er staðsett í samkomusal og er til afnota þegar salurinn er opinn og ekki í annarri notkun.

Göngu- og hjólaleiðir
Í kringum Reykjalund eru fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir sem nýta má til útivistar og hreyfingar. Á vef Mosfellsbæjar eru m.a. gagnlegar upplýsingar um ýmsar göngu- og hjólaleiðir og einnig göngukort sem hægt er að prenta út.

Algengar spurningar

Get ég fengið læsta hirslu?
Já, hægt er að fá læstan skáp.

Er hægt að komast á netið á Reykjalundi?
Já, á Reykjalundi er þráðlaust gestanet, einnig er aðgengi að tölvu nálægt móttöku.

Er útvarp inni á herberginu?
Nei, en hægt er að taka með sér lítið útvarpstæki.

Er sjónvarp inni á herberginu?
Nei, en sjónvörp eru á setustofum.

Er hraðbanki á Reykjalundi?
Nei, en þrír hraðbankar eru í miðbæ Mosfellsbæjar.