07.11.2014

Vísindadagur 21. nóvember

Vísindadagur Reykjalundar verður haldinn í 11. sinn föstudaginn 21. nóvember kl. 13-16. Á dagskrá eru níu erindi sem fjalla um niðurstöður rannsókna á Reykjalundi, sem eru afar fjölbreyttar rétt eins og starfsemin á Reykjalundi. Þar verður meðal annars fjallað um svefntruflanir hjá sjúklingum með vefjagigt, sjálfshjálp í meðferð við þunglyndi og kvíða, líf án tóbaks og taltog sem meðferð.

Allt þetta og margt fleira á 11. vísindadegi Reykjalundar. Allir velkomnir.  

Til baka