Verkjaskóli

Verkjaskólinn er á ábyrgð iðju- og sjúkraþjálfara, en markmið er að auka vitund þátttakenda um eigin áhrifamátt í tengslum við verki og verkjamynstur. Lögð er áhersla á heilbrigði og áhrif lifnaðarhátta á verki. Þátttakendur fá fræðslu í formi fyrirlestra, taka þátt í verklegum tímum og auka þannig tilfinningu sína gagnvart sjálfum sér og tileinka sér æskilega líkamsbeitingu við leik og störf.

Verkjaskólinn stendur yfir í tvær vikur.  

Fyrirlestrar fjalla um flest sem viðkemur verkjum:

  • Byggingu og starfsemi stoðkerfis
  • Líkamsbeitingu
  • Vinnustöður
  • Þjálfun

 Í verklegum tímum er unnið með:

  • Vinnustellingar
  • Lyftitækni
  • Líkamsvitund