22.12.2023

Föstudagsmolar forstjóra 22. desember 2023 - Gleðileg jól!

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Eftir vetrarsólstöður í gær er daginn tekið að lengja aftur. Jólin nálgast og nýtt og spennandi ár býður okkar handan við hornið.

Þessa síðustu föstudagsmola ársins vil ég nota til að óska ykkur öllum, fjölskyldum ykkar og vinum, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég vona að þið eigið öll góðar stundir um hátíðarnar hvort sem þið dveljið í faðmi fjölskyldu og vina eða gerið eitthvað annað. Sendi sérstakar kveðjur til ykkar sem standið vaktina á Hlein um hátíðarnar en við hin njótum þess að hægt er að gera hlé á meðferðarstarfinu milli jóla og nýársins.

Ég þakka ykkur einnig kærlega fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf á árinu sem er að líða og samverustundirnar.
Sérstaklega langar mig að koma enn og aftur á framfæri miklu þakkæti til allra vegna húsnæðishrakninganna sem hafa dunið á okkur síðustu vikur. Þar hefur heldur betur reynt á þolrifin og þolinmæðina. Það hefur hins vegar verið frábært að fylgjast með samstöðunni og hvernig allir hafa lagst á eitt við að gera sitt besta í þessum erfiðu aðstæðum. Slíkt er ekki sjálfsagt og fyrir það ber að þakka.

Endurhæfing miðar að því að auka lífsgæði einstaklingsins og þeirra sem næst honum standa og er sannarlega þjóðhagslega hagkvæm þegar horft er til nýtingu fjármagns í samfélaginu. Starfsemi Reykjalundar er því gríðarlega mikilvæg fyrir samfélag okkar enda er sú meðferð sem veitt er á Reykjalundi ekki í boði annars staðar. Það er von okkar að hægt verði að finna lausnir sem tryggja samfellda og órofna þjónustu við sjúklinga til bæði skamms og langs tíma ásamt því að geta boðið upp á góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk. Við skorum að stjórnvöld að finna farsælar lausnir með okkur sem allra fyrst.

Ég lít á það sem forréttindi að fá að vinna með öllu því góða fólki sem hjá okkur starfar og gerir starfsemina jafn glæsilega og raun ber vitni.
Ég hlakka mikið til að takast á við árið 2024 með ykkur – þar sem verkefni okkar verður að gera glæsilegan Reykjalund enn glæsilegri og betri!

Fjöruga jólamyndin sem fylgir molunum í dag var tekin í jólatíma starfsmannaleikfiminnar okkar í vikunni.

Njótið vel um hátíðarnar!
Pétur

Til baka