08.09.2023

Föstudagsmolar forstjóra 8. september 2023 - Gestahöfundur er Kristín Magnúsdóttir á Alþjóðadegi sjúkraþjálfunar.

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Í dag er stór dagur hér á Reykjalundi en þá leggjum við hliðar hefðbundna vinnu og höldum stefnumótunardag. Við ætlum að svara spurningum eins og hvert á hlutverk Reykjalundar að vera, hver er framtíðarsýnin og hverjar eiga áherslur okkar að vera næstu árin. Í kjölfarið verður svo farið í skilgreiningu mælanlegra markmiða út frá þeim áherslum sem horft verður til næstu árin ásamt forgangsröðun aðgerða út frá skilgreindum mælanlegum markmiðum. Það verður sannarlega spennandi að taka þátt í þessu verkefni með ykkur enda er framtíð Reykjalundar í okkar höndum og öll höfum við skoðanir hvert Reykjalundarskipið á að sigla. Þátttakan er hreint frábær svo þetta verður mjög gaman.
Í dag er einnig Alþjóða dagur sjúkraþjálfunar og því er vel við hæfi að gestahöfundur molanna í dag komi úr röðum þessara snillinga okkar en það er Kristín Magnúsdóttir sjúkraþjálfari. Molarnir eru áhugverð fræðslugrein um gigt sem hún skrifaði í tilefni Alþjóða dagsins.
Um leið og óska sjúkraþjálfurum til hamingju með daginn sendi ég ykkur öllum mínar bestu kveðjur um góða helgi!

Bestu kveðjur
Pétur


Alþjóðadagur sjúkraþjálfunar og gigt er þema dagsins.

Alþjóðadagur sjúkraþjálfunar er haldinn ár hvert, þann 8. september. Heimssamband sjúkraþjálfara og sjúkraþjálfarar um allan heim nýta daginn til að vekja athygli á hvernig sjúkraþjálfarar geta aðstoðað við að bæta lífsgæði, færni og sjálfstæði einstaklinga. Í ár er þema dagsins gigt og því kjörið að beina sjónum okkar að henni. Gigt er samheiti yfir ólíka sjúkdóma sem flestir eiga það sameiginlegt að valda bólgu og/eða verkjum í liðum og vöðvum. Til eru margar tegundir gigtar þar á meðal liðagigt, þvagsýrugigt, barnagigt, hryggikt, sóragigt og slitgigt. Slitgigt er langalgengasta tegundin en árið 2019 voru 528 milljónir manna í heiminum með slitgigt og er hún ein helsta ástæða færniskerðingar hjá eldra fólki.

Einkenni gigtar eru mismunandi eftir tegundum og hefur hún ólík áhrif á einstaklinga. Helstu einkennin eru liðverkir, stirðleiki, bólga, hiti/roði yfir liðnum, krafleysi og minnkaður vöðvamassi. Þessi einkenni valda því oft að fólk á erfitt með hreyfingu á borð við göngu, standa upp af stól, ganga upp og niður stiga. Þegar daglegar athafnir eru farnar að vefjast fyrir fólki, er talað um færniskerðingu.

Algengt er að fólk dragi úr hreyfingu þegar einkenni gigtar fara að gera vart við sig, þar sem hreyfing slitinna og bólginna liða getur reynst fólki bæði erfið og sársaukafull. Regluleg hreyfing og þjálfun er mikilvægur hluti af meðferð við öllum tegundum bólgugigtar en með henni má hægja á framgangi sjúkdómsins, minnka verki og draga úr færniskerðingu. Hreyfing er einnig mikilvæg til að viðhalda þreki og draga úr líkum á að fólk þrói með sér lífstílssjúkdóma á borð við hjarta- og lungnasjúkdóma, sykursýki og offitu vegna hreyfingarleysis.

Að upplifa verki á meðan á þjálfun stendur eðlilegur hluti af því að æfa með gigt. Þrátt fyrir að þjálfun geti stundum verið sársaukafull er það oftast ekki merki um að liðurinn sé að skemmast meira, heldur frekar merki um að líkaminn sé að aðlagast nýjum hreyfingum. Stundum geta einkenni gigtar aukist tímabundið, t.d. ef farið er of geyst í þjálfun, en þá er jafnan talað um ,,kast”. Á meðan á kasti stendur getur verið gott að draga úr (ekki hætta) þjálfun og leyfa líkamanum að jafna sig.

Sjúkraþjálfarar geta aðstoðað fólk við val á æfingum við hæfi með það að markmiði að byggja upp styrk, auka úthald, viðhalda liðleika, færni og virkni. Þolþjálfun s.s. sund, hjól og göngur er einnig góð leið til að virka náttúrulega verkjastillingu líkamans en heilaboðefnið endorfín sem líkaminn framleiðir við þolþjálfun hefur verkjastillandi áhrif. Það að greinast með gigt þarf því ekki að þýða að fólk þurfi að hætta að stunda þá hreyfingu sem það hefur gaman af en margir með gigt geta stundað dans, fjallgöngur og jafnvel hlaup.

Sjúkraþjálfari er mikilvægur hluti af meðferðinni þinni. Sjúkraþjálfari getur aðstoðað þig við að þjálfa á öruggan hátt, auka virkni þína, setja þér markmið og finna jafnvægi milli hvíldar og virkni. Sjúkraþjálfari sem hluti af meðferðarteymi, aðstoðar þig við að lifa virku lífi bæði heima og í vinnunni.

Kristín Magnúsdóttir,
sjúkraþjálfari á gigtarsviði Reykjalundar

Til baka