10.03.2023

Föstudagsmolar forstjóra 10. mars 2023.

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Fundir forstjóra með starfshópum
Þessa dagana er ég að heimsækja alla starfsmannahópa hér á Reykjalundi en fundir sem þessir eru eitt það mikilvægasta og skemmtilegasta í mínu starfi. Hugmyndin er að fá tækifæri til að hitta alla starfsmenn á smærri fundum og hefur ykkur verið skipt í hópa eftir fagsviði eða starfsvettvangi. Á fundunum fer ég yfir nokkur mál tengd starfsemi okkar en mikilvægt er einnig að tími sé fyrir umræður um þau mál sem hver hópur hefur áhuga á að ræða. Vonandi næst að klára alla fundina nú í mars. Þakka ykkur kærlega fyrir sem þegar hafa fundað með mér en skapast hafa mjög fínar umræður um okkar góða starf.

Stefnumótun framundan fyrir Reykjalund
Eitt af því sem ég ræði á starfsmannafundunum er stefnumótun sem framundan er hjá okkur. Við munum nota næstu mánuði til að móta stefnu til næstu 5 ára þar sem hlutverk, framtíðarsýn og áherslur Reykjalundar verða skilgreindar. Einnig er mikilvægt að skilgreina mælanleg markmið og út frá þeim nauðsynlegar aðgerðir. Við stöndum á ákveðnum tímamótum og þurfum að svara ýmsum stórum og mikilvægum spurningum. Dæmi um slíkar spurningar eru: Ætlum við að einbeita okkur að sérhæfðri endurhæfingaþjónustu eða viljum við fara meira í átt að annari endurhæfingu? Erum við með rétt meðferðarteymi eins og er? Eru einhver teymi sem ætti að bæta við eða á að fækka þeim eða sameina? Vinna við kortlagningu og skipulag mönnunarsamsetningar meðferðteymanna sem nú stendur yfir tengist þessu auðvitað mikið. Í dag eru tvö meðferðarsvið á Reykjalundi og við þurfum að ræða hvernig við viljum að samvinnu innnan þeirra sé háttað. Ýmisir tala fyrir aukinni samvinnu milli meðferðteymanna á hvoru sviði fyrir sig og þá er forvitnilegt að heyra hugmyndir um hvernig nákvæmlega ætti slík samvinna að vera. Stórt mál tengd húsnæðinu okkar er uppröðun starfseminnar inn í húsið, til dæmis hvort núverandi staðsetningar meðferðateyma séu heppilegar eða er önnur uppröðun heppilegri: Ættu allir í sama meðferðarteymi að vera staðsettir saman á gangi eða í álmu?
Ýmsir vinnuhópar verða í þessu ferli en hápunktinum verður náð föstudaginn 8. september, þegar öllu starfsfólki verður boðið að taka þátt í sérstökum stefnumótunardegi sem kynntur verður síðar.
Stefnumótunin verður framkvæmd undir stjórn Guðrúnar Ragnarsdóttur ráðgjafa hjá fyrirtækinu Strategíu. Þar erum við í góðum höndum en Guðrún vann með okkur á tíma starfsstjórnar árið 2020 að nýju skipulagi og þekkir vel til hjá okkur. Stefnumótunin er rökrétt skref í framhaldi af þeirri vinnu sem fór af stað eftir ábendingar úttektar sem Embætti landlæknis gerði hjá okkur árið 2019.  Guðrún hefur áratuga reynslu af stefnumótun, innleiðingu stefnu og stjórnun breytinga hjá mörgum af þekktustu fyrirtækjum landsins, hjá hinu opinbera og ýmsum sveitarfélögum. Meðal annars má nefna
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, VIRK, Sjálfsbjargarheimilið, Lyfjastofnunar og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Þetta verður kynnt nánar þegar nær dregur en gaman væri ef þið farið að hugsa málin og hefja umræðuna.

Í tengslum við myndina sem fylgir molunum og mér finnst gott að skoða reglulega, þá vil ég minna okkur öll að sýna hvert öðru nærgætni, virðingu og gleði. Við þurfum að sýna því skilning að við erum eins og ólík og við erum mörg og getum haft ólíka sýn á hlutina. Enn það er kannski einmitt það sem gerir okkur að sterkum hópi í mögnuðu teymisumhverfi og ekki síst gerir Reykjalund jafn flottan og glæsilegan og raun ber vitni.

Njótið helgarinnar!
Pétur

Til baka