23.12.2022

Föstudagsmolar forstjóra 23. desember 2022 - Gleðileg jól!

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Upp er runnin Þorláksmessudagur og jólin sjálf eru handan við hornið. Daginn er tekið að lengja aftur og nýtt og spennandi ár býður okkar.

Ég vil nota þetta tækifæri og óska ykkur öllum, fjölskyldum ykkar og vinum, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég vona að þið eigið öll góðar stundir um hátíðarnar hvort sem þið dveljið í faðmi fjölskyldu og vina eða gerið eitthvað annað. Sendi sérstakar kveðjur til ykkar sem standið vaktina á Hlein um hátíðarnar en við hin njótum þess að hægt er að gera hlé á meðferðarstarfinu milli jóla og nýársins.

Jafnframt þakka ég ykkur kærlega fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf á árinu sem er að líða og samverustundirnar. Í heildina hefur þetta gengið ljómandi vel og vonandi er við laus við faraldurinn sem hefur hvílt eins og skuggi yfir starfseminni síðustu tvö árin eða svo. Við getum sannalega verið stolt af því merka framlagi Reykjalundur skilar af sér til samfélagsins. Ég lít á það sem forréttindi að fá að vinna með öllu því góða fólki sem hjá okkur starfar og gerir starfsemina jafn glæsilega og raun ber vitni.

Ég hlakka mikið til að takast á við árið 2023 með ykkur – þar sem verkefni okkar verður að gera glæsilegan Reykjalund enn glæsilegri og betri!

Myndin jólalega og hressilega með molunum í dag var tekin í jólatíma starfsmannaleikfiminnar okkar í vikunni.
Mig langar að enda föstudagsmolana á þessum smellna texta eða ljóði eftir Braga Valdimar Skúlason – Nú mega jólin koma fyrir mér.

Nú mega jólin koma fyrir mér.

Á fyrsta sunnudegi aðventunnar
ég ek til kaupmannsins í einum rykk.
Því þó að fjárhirslurnar gerist grunnar
ég geri vel við mig í mat og drykk.
Ég kaupi sætabrauð og súkkulaði,
súpur og ávexti og kjöt og smér.
Klyfjaður góssi burt ég held með hraði
og hleð í skottið allskyns gúmmelaði.
– Þá mega jólin koma fyrir mér.

Á öðrum sunnudegi aðventunnar
alhliða hreinsunarstarf á sér stað.
Þá söngperlur ég söngla, ýmsum kunnar
og síðan læt ég renna í funheitt bað.
Þá allar spjarirnar ég af mér reyti
og öllum deginum við þvotta ver.
Ég skrúbba tærnar, skegg og lubba bleyti.
Ég skef úr eyrum, svonað mestu leyti.
– Þá mega jólin koma fyrir mér.

Á þriðja sunnudegi aðventunnar
andlegu hliðinni ég geri skil.
En til að virka skulu viskubrunnar
sko vera rakir, eða þar um bil.
Það stoðar lítt að sitja einn með ekka;
örlögum heimsins velta fyrir sér.
En ég verð heimsins mesta mannvitsbrekka
á meðan ég fæ bara nóg að drekka.
– Þá mega jólin koma fyrir mér.

Á fjórða sunnudegi aðventunnar
ég æði um húsið til að gera fínt.
En skreytingarnar eru ansi þunnar
því árans skrautið virðist mest allt týnt.
Ég skvetti sápuvatni á gólf og glugga
og gref upp nokkuð heillegt sængurver.
Við bústnum rykmaurum ég reyni að stugga
og ryð svo þvottinum í næsta skugga.
– Þá mega jólin koma fyrir mér.

Loks þegar aðfanganna dag að drífur
ég dreg fram spariföt og flibbahnapp.
Svo þegar skyrtukraginn stendur stífur
ég stari í spegilinn og gef mér klapp.
Því jólin eru tími til að þakka
og taka ofan fyrir þeim sem ber.
Meðan ég hef matarögn að smakka
og meðan ég fæ risavaxinn pakka.
– Þá mega jólin koma fyrir mér.

Gleðilega hátíð og vonandi náið þið að njóta vel!
Pétur

Til baka