08.07.2022

Föstudagsmolar forstjóra 8. júlí 2022

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Eftir daginn í dag hefst sumarhlé hér á Reykjalundi þar sem við leggjum niður daglega starfsemi fram til 8. ágúst. Hlein er auðvitað undantekning og þangað sendi ég mínar bestu sumarkveðjur.
Molar dagsins bera alveg brag af því að sumarleyfið er framundan. Við höfum í vikunni flest verið að keppast við að klára ýmis mál svo hægt sé að komast í frí.
Þó sumarleyfið sé sannarlega tilhlökkunarefni býð ég líka spenntur eftir að við förum í gang aftur að sumarhléi loknu og getum hafist handa við halda áfram hlutverki okkar sem leiðandi aðili í endurhæfingarþjónustu hér á landi. Þar bíða okkar ýmis viðfangsefni og úrlausnarefni.
Eins og venjulega vil ég líka nota þetta tækifæri og minna okkur öll á mikilvægi þess að koma starfseminni í full afköst eins fljótt og hægt er eftir sumarlokun. Hver dagur skiptir þar máli en alger forsenda í okkar starfsemi er að standa við samning við Sjúkratryggingar Íslands um fjölda sjúklinga sem njóta þjónustu okkar og fjölda meðferðardaga. 

„Out-of-office“ fyrir fríið
Áður en þið farið í fríið langar mig góðfúslega minna ykkur á þá kurteisu reglu að setja Automatic Replies (Out-of-office) á tölvupóstinn ykkar þar sem fram kemur hvenær þið komið aftur og við hvern eigi að hafa samband ef erindið getur ekki beðið þar til komið er til baka úr fríinu. Þetta getur létt samstarfsfólki og ýmsum aðilum utan Reykjalundar störf sín. Einnig er gott að láta móttökuna vita ef fólk er í fríi á öðrum tímum en sumarhléið okkar.

Njótið sumarsins!
Að lokum vil óska ykkur öllum og fjölskyldum ykkar gleðilegs sumars. Ég vona að þið eigið öll ánægjulegar sumarstundir hvort sem það er í faðmi fjölskyldu og vina heimavið, á ferðalögum eða bara í hvíldarslökun með sjálfum ykkur. Aðalatriðið er að allir (sem allra flestir) nái að hlaða vel batterýin eftir erfiðan vetur og ég hlakka til að sjá ykkur hress og kát að fríi loknu enda margt spennandi framundan í Reykjalundarlífinu.

Föstudagsmolarnir fara nú í sumarfrí og verða næst föstudaginn 12. ágúst.
Mynd dagsins er fengin að láni af alnetinu.
Hafið það gott í sumar og njótið lífsins!

Bestu kveðjur,
Pétur

Til baka