24.05.2022

Ólöf er nýr framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi

Ágæta samstarfsfólk á Reykjalundi,

Mér er ánægja að tilkynna að Ólöf Árnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar hér á Reykjalundi en starfið var auglýst laust til umsóknar nýlega.

Ólöf er menntuð hjúkrunarfræðingur og hefur einnig MS gráðu í stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Hún hefur víðtæka starfsreynslu frá störfum sínum á Norðurlöndum og hér heima og langa reynslu af hjúkrunarstjórnun, aðallega frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem hún hefur starfað undanfarin ár. Ólöf hefur í störfum sínum öðlast mikla reynslu af þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta, innleiðingu nýrra kerfa, nýtingu mannauðs, endurskipulagningu eininga og daglegri stjórnun hjúkrunar. Hún hefur jafnframt yfirgripsmikla klíníska reynslu sem hjúkrunarfræðingur og lagt rækt við þau tengsl samhliða stjórnunarstörfum, bæði hérlendis og erlendis.

Ólöf kemur að fullu til starfa 1. júlí en mun þó strax í vikunni hefja störf að hluta.
Við bjóðum Ólöfu velkomna í Reykjalundarhópinn en það er sannarlega fengur að fá hana til okkar!
        
Bestu kveðjur,
Pétur Magnússon
Forstjóri/CEO

Til baka