11.06.2021

Föstudagsmolar forstjóra 11. júní 2021

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Hér að neðan er að finna föstudagsmola dagsins en gestahöfundur í dag er Bryndís Haraldsdóttir, formaður Hollvinasamtaka Reykjalundar.
Gleðilega helgi og njótið nú vel!

Bestu kveðjur
Pétur Magnússon


Ég er stolt af því að hafa fengið það hlutverk að vera formaður Hollvinasamtaka Reykjalundar. Reykjalundur er mér kær, þar sem þetta var fyrsti viðkomustaður minn þegar ég flutti í fallega Mosfellsbæ. Ég bjó við Neðribraut þar sem móðir mín fékk vinnu á Reykjalundi sem hjúkrunarfræðingur. Húsakynni Reykjalundar voru sem völundarhús og yndislega náttúran í kringum staðinn óþrjótandi ævintýraland til ýmissa leikja. Síðar á ævinni varð ég svo vitni af því magnaða starfi sem á Reykjalundi er unnið á degi hverjum og  margir líkamar og sálir hafa svo sannarlega fengið tækifæri til lengra og betra lífs þökk sér Reykjalundi.

Hollvinasamtök Reykjalundar eru samtök fólks sem þykir vænt um Reykjalund og er tilbúið til að leggja sitt af mörkum til að efla starfsemina og styrkja frekari uppbyggingu hennar. Margir eiga þessari stofnun líf sitt að þakka, eða eiga vini og ættingja sem hafa fengið bót sinna meina eftir dvöl á Reykjalundi. Um fjögur hundruð manns eru í Hollvinasamtökunum og við værum svo sannarlega til í að fjölga þeim. Engin skuldbinding fylgir því að vera félagi, önnur en sú að borga hóflegt árgjald sem nýtt er í þágu starfsemi Reykjalundar. Aðrir sem vilja leggja Reykjalundi lið geta haft samband við samtökin, sem sjá þá um að koma fjármunum rétta leið. Samtökunum hafa borist miklar og góðar gjafir frá einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum á undanförnum árum.
Hollvinasamtökin hafa staðið fyrir kaupum á ýmsum tækjum sem gagnast starfseminni vel en þau eru keypt í samráði við forstjóra, lækna og aðra sem til þekkja.

Á síðustu árum höfum við gefið hjartaómtæki og öndunarmæli, sem eru til þess gerð að auka enn frekar þjónustu við skjólstæðinga Reykjalundar. Hollvinasamtökin voru stofnuð í lok árs 2013 og hafa frá þeim tíma gefið Reykjalundi gjafir fyrir rúmlega 60 milljónir.

Ég þekki það vel verandi hluti af löggjafavaldinu að fjármunir hins opinbera eru takmarkaðir og þó ríkið eigi að sjálfsögðu að standa veglega undir þjónustu Reykjalundar þá skipta svona samtök máli. Jákvæðnin í garð Reykjalundar er mikil úti í samfélaginu enda er það orðið flestum ljóst hversu mikilvægt starfið á Reykjalundi er.

Reykjalundur hefur svo enn og aftur sannað gildi sitt á Covid tímum og það er magnað að sjá hversu hratt og vel stofnuninni hefur tekist að aðlaga sig að breyttum aðstæðum og að veita meðferð við nýjum sjúkdómi. Magnað starfsfólk hefur með vísindaþekkingu sinni, rannsóknum, kunnáttu og elju sinni hjálpað íslensku samfélagi að rísa upp úr Kófinu.

Framtíð okkar og framtíð Reykjalundar er björt.

Bryndís Haraldsdóttir,
formaður Hollvinasamtaka Reykjalundar

Til baka