04.01.2021

Sundhópar í heilsurækt hefjast 11. janúar 2021

Stefnt er að því, með fyrirvara þó sökum heimsfaraldurs, að sundhópar í heilsurækt Reykjalundar hefjist 11. janúar.  Karlaleikfimi hefst ekki þann dag og koma nánari upplýsingar um hana 12. janúar.

Vegna breytinga á meðferðarstarfi Reykjalundar, sökum heimsfaraldurs, seinkar hópum eftir hádegi um nær hálfa klukkustund. Húsið opnar 16.30 í stað 16.05 og eru þátttakendur, af sóttvarnarástæðum, beðnir að virða þau tímamörk og mæta ekki fyrir þann tíma.

Hópur 1 hefst 16.45
Hópur 2 hefst 17.30
Hópur 3 hefst 18.15
Hópur 4 hefst 16.45
Hópur 5 og hópur 6 hefjast á sama tíma og í haust eða kl. 07.00 (hús opnar 6.45)

Til baka