23.10.2020

Covit-smit meðal starfsfólks Miðgarðs á Reykjalundi

Í gærkvöldi kom í ljós að tveir starfsmenn Reykjalundar mældust jákvæðir fyrir Covid-veirunni. Þeir eru báðir starfsmenn á Miðgarði sem er sólarhringsdeild með 14 rúmum. Á deildinni dvelja nú 16 sjúklingar þar sem Reykjalundur hefur verið að leggja sitt af mörkum síðustu daga með því að taka við sjúklingum af Landspítala til að létta þar á.

Um leið og grunur kom upp um mögulega sýkingu, sem og eftir að jákvætt sýni greindist, fóru í gang markvissir verkferlar um sóttvarnir og varnir gegn smitleiðum. Aðgerðirnar eru gerðar í nánu samráði við Smitrakningarteymi Almannavarna sem hefur í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk Reykjalundar skipulagt starfsemi á Miðgarði í samræmi við ítrustu sóttvarnir og verkferla þar um, enda eru þar sjúklingar sem geta verið í áhættuhópum.

Sem betur fer, hafa í ljósi stöðunnar verið í gildi mjög strangar sóttavarnarreglur á Reykjalundi síðustu vikur. Starfsemin hefur farið fram í skilgreindum sóttvarnarhólfum þannig að starfsemi Miðgarðs hefur verið aðskilin annarri starfsemi. Almenn starfsemi Reykjalundar ætti ekki að breytast vegna þessa, en þó er möguleiki að einhver minnkun verði á starfsemi meðferðarteyma sem gætu þurft færa til einhverja starfskrafta sína tímabundið til aðstoðar á Miðgarði.

Nú eru því 10 starfsmenn Miðgarðs í sóttkví eða veikindum og allur aðgangur að deildinni er bannaður nema í sérstökum undantekningartilvikum.
Búið er að láta sjúklinga Miðgarðs og aðstandendur vita af stöðu mála en enginn sjúklingur hefur sýkst ennþá svo vitað sé.

Ég vil nota þetta tækifæri og senda sjúklingum og starfsfólki Miðgarðs mínar bestu kveðjur. Ég veit að þeirra bíða mjög erfiðir dagar, hvort sem fólk er í sóttkví eða við vinnu. Fulltrúar framkvæmdastjórnar Reykjalundar munu í dag leita til margra í hópi annara starfsmanna Reykjalundar um að koma og aðstoða við vinnuframlag á Miðgarði næstu daga. Vonandi hafa sem flestir tök á að létta þar undir.
Ég vil jafnframt þakka fyrir markviss og öguð vinnubrögð í þessu erfiða máli um leið og ég sendi þeim sem hafa sýkst bestu batakveðjur.
Við sjúklinga okkar og aðstandendur þeirra vil ég harma þau óþægindi sem þetta ástand og ráðstafanir því tengdu hafa í för með sér.

Pétur Magnússon,
Forstjóri Reykjalundar

Til baka