17.09.2020

Covid-smitaður einstaklingur á Reykjalundi

Í gær greindist Covid-smitaður einstaklingur á Reykjalundi. Um er að ræða háskólanema sem verið hefur á staðnum í verknámi undanfarna daga. Ekki hefur áður verið einstaklingur með virka Covid-sýkingu inn á Reykjalundi svo vitað sé.

Um leið og grunur kom upp um mögulega sýkingu, sem og eftir að jákvætt sýni greindist, fóru í gang markvissir verkferlar um sóttvarnir og varnir gegn smitleiðum. Í samvinnu við smitrakningateymi Almannavarna, hefur verið reynt að kortleggja nákvæmlega hvaða aðila viðkomandi einstaklingur umgengst á Reykjalundi síðustu daga og skilgreint hverjir gætu verið í áhættuhópi vegna þess.
Í öryggisskyni hefur hluta af starfsemi Reykjalundar nú verið lokað tímabundið. Um 20 starfsmenn eru komnir í sóttkví og jafnframt hafa þeir skjólstæðingar sem hafa verið nálægt viðkomandi einstaklingi, verið látnir vita og eru þeir ýmist í sóttkví eða munu ekki koma á Reykjalund næstu daga.

Sem betur fer hafa verið markvissir sóttvarnarverkferlar og reglur í gangi á Reykjalundi sem bæði skjólstæðingar og starfsfólk hefur fylgt og því þarf ekki að grípa til algerrar lokunar á starfsemi. Stjórnendur Reykjalundar munu fylgjast grannt með stöðu mála og bregðast við eftir þörfum.

Reykjalundur harmar þau óþægindi sem þetta kann að valda skjólstæðingum í mikilvægri meðferð, sem og starfsfólki sem málinu tengist. Jafnframt ber að þakka starfsfólki Reykjalundar og öðrum sem að málinu hafa komið, fyrir snör og markviss vinnubrögð sem vonandi hafa leitt til þess að búið er að ná eins góðum tökum á ástandinu og mögulegt er.

Ljóst er að starfsemi Reykjalundar verður mjög takmörkuð næstu daga en í þessum málum verður að sýna varkárni, vandvirkni og vönduð vinnubrögð til að tryggja sem best hag skjólstæðinga og allra annara sem tengjast Reykjalundi.

Pétur Magnússon
Forstjóri Reykjalundar

Til baka