07.08.2020

Föstudagsmolar forstjóra 7. ágúst 2020

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Listin að læra lifa með Covid!

Því miður er það svo að enn og aftur er Covid að taka ansi mikinn tíma, orku og athygli í okkar daglega lífi. Í morgun bárust fréttir af því að faraldurinn væri að ná nýjum hæðum á heimsvísu og öll þekkjum við hættuna á auknum smitum hér á landi. Covid-veiran er því ekki farin frá okkur -  síður en svo – og hún er ekkert að fara næstu mánuðina eða jafnvel næstu árin. Við verðum því að fara úr biðstöðunni sem við höfum verið í (þar sem við bíðum eftir að allt verði aftur eins og það var) og yfir í að það að lifa með Covid á mismunandi stigum.

Ég er einn af þeim sem hrósa happi yfir hvað við Íslendingar erum heppinn að hafa „þríeykið“ okkar við stjórnvölin hér. Þó margir hafi sannarlega lagt hönd á plóginn í baráttunni við Covid hér á landi þarf samt öfluga leiðtoga með bein í nefinu til að stýra málum, lesa sem best í aðstæður á hverjum tíma og hafa dug til að láta ekki undan alls kyns þrýsting og sérhagsmunum. Þar hefur þríeykið okkar sannarlega staðið sig vel og leitt heilbrigðiskerfið - og í raun landsmenn alla - í gegnum þetta magnaða og erfiða ferli með einhverjum besta árangri í heiminum, að minnsta kosti hingað til.
Þó enn sé kannski of snemmt að fara meta árangur einstakra landa í baráttunni og hvað þá að bera saman aðgerðir eru nú komnar fram ýmsar vísbendingar að við séu að gera vel. Kynnt hefur verið í Svíþjóð að dauðsföllin þar eru komin vel yfir 5.000 sem lauslega reiknað miðað við höfðatölu myndi þýði um 200 dauðsföll hér á landi vegna Covid en ekki 10 eins og raunin er. Bretland, Brasilía, Bandaríkin og mörg önnur lönd gæfu okkur ekki heldur glæsilegar tölur; en þar eru tölurnar ekki eins áreiðanlegar.

Hvað sem öllum tölum líður er ljóst að kórónaveiran er ekkert að fara í bráð eins og áður segir. Núverandi ástand mun vara í vetur og jafnvel næsta sumar og veturinn þar á eftir. Næstu mánuðir og ár munu því byggjast á sveiflum í vörnum gegn Covid en ekki hvort veiran sé ennþá til staðar eða farinn. Ekki er ólíklegt að við hér á Reykjalundi munum koma okkur upp einhvers konar kerfi í 3-4 stigum, líkt og almannavarnir hafa gert vegna óveðurs – gult, appelsínugult og svo framvegis. Hvert stig yrði þá með skilgreindum aðgerðum og verkferlum. Svo myndi starfsfólk einfaldlega fylgjast með hvaða „litur“ er í gangi á hverjum tíma og þá vita allir hvernig á að bregðast við og hegða sér hverju sinni og þurfa ekki að eyða dýrmætum tíma eða orku í að finna út enn einu sinni hvað eigi að gera.

Þetta er allt ennþá á umræðustigi hjá okkur í framkvæmdastjórninni, en alveg ljóst að við munum þurfa að gera eitthvað í þessa átt. Slíkt verður þó alltaf í nánu sambandi við ykkur, ágæta samstarfsstarfsfólk. Vil ég nota þetta tækifæri og þakka fyrir góðar ábendingar, vangaveltur og tillögur í okkar varnarbaráttu í daglegu starfi enda ýmislegt að koma upp sem ekki var búið að sjá fyrir og er þá auðvitað engin deild eða eining undanskilin. Ég vil því hvetja ykkur til að fylgjast vel með því nýjar reglur verða gefnar út um leið og ástæða þykir til.

Ræstingin okkar gegnir lykilhlutverki í Covid-vörnum. Á því stigi sem nú er í gildi hjá okkur hér á Reykjalundi, er starfsfólki deildarinnar skipt í starfshópa sem hittast ekki og hver starfsmaður ræstir aðeins ákveðin svæði. Einnig eru ákveðnar reglur um sprittun og þrif sem bætast við hefðbundin störf þeirra. Það er vel við hæfi að myndin sem fylgir pistlinum í dag sé af hluta ræstingastarfsfólks okkar en ég veit að þessi mál eru í mjög góðum höndum hjá Petreu og félögum, þó tveggja metra reglan hafi aðeins verið sveigð við myndatökuna.

Um leið og ég óska ykkur góðrar helgar vil ég minna á mikilvægi handþvottar, sprittunar og tveggja metra reglunnar. Nú er ekkert annað í boði í stöðunni en að tileinka okkur listina að lifa með Covid. Því fyrr sem við tileinkum okkur þá list, því betra.
Ég er líka sannfærður um að við á Reykjalundi verðum fljót að koma okkur á fullt skrið með Covid og halda áfram að leggja okkar merka starf til samfélagsins!

Bestu kveðjur,
Pétur Magnússon

Til baka