08.05.2020

Magdalena Ásgeirsdóttir, yfirlæknir, um Covid-19

„Það er alveg gríðarleg þreyta, það er örmagna, örmagna bæði á líkama og sál. Þetta er náttúrulega nýr sjúkdómur og óþekktur og við erum í rauninni að skrifa söguna. Við fagfólkið hér lesum alla daga einhverjar greinar sem eru að birtast í hinum stóra heimi. Þetta er fjölkerfa sjúkdómur sem leggst á öll líffærakerfi. Þessi almenna þreyta er í rauninni eins og eftir aðra alvarlega sjúkdóma og langvarandi gjörgæsludvöl. Það sem er öðruvísi núna er náttúrulega að þetta er af völdum smitsjúkdóms sem er alvarlegur. Það þarf að gæta vel að smitvörnum því við erum með blandaða deild hér.“
Þetta segir Magdalena Ásgeirsdóttir, yfirlæknir á Reykjalundi.

Til að lesa heilu greinina vinsamlegast smellið hér.

Til baka