30.10.2019

Vísindadagur 15. nóvember

Vísindadagur Reykjalundar verður haldinn í 16. sinn föstudaginn 15. nóvember 2019 kl. 12.30 – 15.30 í Samkomusalnum.

Starfsmenn og nemar sem hafa unnið rannsóknarverkefni á Reykjalundi kynna niðurstöður rannsókna sinna. Að auki verður á vísindadegi sérstakt málþing haldið til heiðurs Magnúsi Ólasyni endurhæfingarlækni sem ber yfirskriftina „Ópíóíðar – til gagns eða glötunar“.

Dagskráin er fjölbreytt að venju og allir eru velkomnir.

Ekki þarf að skrá sig og aðgangur er ókeypis. Kaffiveitingar í hléi.

Til baka