23.08.2019

Herdís framkvæmdastjóri endurhæfingarsviðs

Herdís Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri endurhæfingarsviðs Reykjalundar.

Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Framkvæmdastjóri endurhæfingarsviðs ber ábyrgð á starfsemi sviðsins og meðferðarteyma sem því tilheyra, skipuleggur og samhæfir faglegt meðferðarstarf og tryggir framgang markmiða, stefnu og sýn Reykjalundar.

Herdís hefur margþætta reynslu af rekstri og stjórnun í heilbrigðiskerfinu. Hún var forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá 2014 en HSU er ein stærsta heilbrigðisstofnun landsins með 500 starfmenn á 10 starfsstöðvum.

Áður vann hún um árabil að margvíslegum verkefnum á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi, m.a. sem verkefnastjóri og klínískur ráðgjafi hjá stjórn heilbrigðis- og upplýsingatæknideildar, verkefnastjóri á þróunarskrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar, verkefnastjóri mannauðs- og gæðamála hjá Barnaspítala Hringsins og sem hjúkrunardeildarstjóri á barnaskurðdeild og dagdeild.

Auk þess hefur hún gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum og stjórnarsetu hjá fyrirtækjum og samtökum. Hún hefur verið klínískur lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ frá 2014.

Herdís lauk BSc-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og meistaraprófi í hjúkrun frá sama skóla árið 2001. Árið 2009 lauk Herdís MBA-prófi frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

Birgir Gunnarsson forstjóri Reykjalundar:
„Það er mikill fengur fyrir Reykjalund að fá Herdísi í forystusveit okkar. Umfangsmikil reynsla hennar af rekstri og stjórnun heilbrigðisstofnana auk djúprar sérfræðiþekkingar mun nýtast við áframhaldandi faglega og þjónustulega uppbyggingu Reykjalundar á næstu árum.“

Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Um þjónustuna gildir þjónustusamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalundar.

Til baka