04.03.2016

Dagur sjúkraþjálfunar

Dagur sjúkraþjálfunar árið 2016 er haldinn hátíðlegur í dag föstudaginn 4. mars á Hilton Hótel Nordica og ætla sjúkraþjálfarar Reykjalundar að fjölmenna á „daginn“ að venju.

Dagur sjúkraþjálfunar er hápunktur faglegs starfs sjúkraþjálfara ár hvert. Í ár verður aðalfyrirlesari dagsins Dr. Jeremy Lewis, sjúkraþjálfari. Hann mun halda tvo fyrirlestra um staðreyndir og mítur varðandi axlarmein. Dr Lewis er einn eftirsóttast fyrirlesarinn og kennarinn á námskeiðum sjúkraþjálfara um allan heim varðandi axlarmein, enda hefur hann ýtt úr vör nýrri bylgju gagnrýnnar nálgunar á allt það sem bæði sjúkraþjálfarar og læknar gera varðandi axlarmein.

Önnur umfjöllunarefni á ráðstefnunni verða m.a. rannsóknir á ungum íþróttamönnum, rannsókn á árangri endurhæfingarinnlagna aldraðra og rannsókn á hreyfiþroska barna, svo fátt eitt sé nefnt. Nánari upplýsingar um dagskránna má sjá hér

Reykjalundur óskar sjúkraþjálfurum landsins til hamingju með daginn.

Til baka