Faghópar
Endurhæfing er þverfagleg vinna og einkennist af samvinnu margra fagmanna sem ásamt sjúklingi hjálpast að við að ná markmiðum endurhæfingar.
Álagspróf, öndunarmælingar og svefnrannsóknir eru megin viðfangsefni hjarta- og lungnarannsóknarstofunnar.
Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á hjúkrun á Reykjalundi og þeirri þjónustu sem veitt er af hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum á stofnuninni. Hjúkrun er einstaklingshæfð meðferð sem byggist á þörfum sjúklingsins og felst í að styðja sjúklinga til að taka á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á heilbrigði þeirra. Unnið er með lífsstíl og mögulegar lífsstílsbreytingar. Þar má nefna svefn og svefnvenjur, slökun, næringu, tóbaksnotkun, jafnvægi í daglegu lífi, félagslega virkni, sjálfsumönnun og sjálfsumhyggju.
Algengt er að færni við iðju breytist í kjölfar sjúkdóms eða annars áfalls. Fólk getur átt í erfiðleikum með að annast sig og sína, vinna heimilisstörf, stunda atvinnu utan heimilis eða njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Iðjuþjálfun er skjólstæðingsmiðuð, sem þýðir að skjólstæðingurinn kýs sér viðfangsefni og vinnur síðan markvisst að því að ná fullnægjandi færni í þeirri iðju í samvinnu við iðjuþjálfa.