09.05.2025

Föstudagsmolar forstjóra 9. maí 2025

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Gleðimannafélagið Sturla.
Það var mikið dýrðir í höfuðborginni í gær en þá fór fram vorferð Gleðimannafélagsins Sturlu. Þetta merkilega gleðimannafélag tengist okkur á Reykjalundi heldur betur. Það var stofnað síðasta haust þegar karlkyns starfsmenn Reykjalundar (sem eru í miklum minnihluta) komu saman og stofnuðu formlegan félagsskap sem ber þetta merka nafn, Gleðimannafélagið Sturla.
Í gær voru einmitt 80 ár frá lokum Seinni heimstyrjaldarinnar í Evrópu og því þótti vel við hæfi að fræðast um stríðsögur tengdar Íslendingum. Farið var í mjög áhugaverða gönguferð í Fossvogskirkjugarði þar sem stríðsárasérfræðingurinn Gísli Jökull miðlaði fróðleik úr stríðinu sem tengist grafreitum í garðinum og var þar af miklu og fjölbreyttu efni að taka.
Svo var haldið á skemmtistaðinn Bullseye þar sem farið var í pílu og snæddur kvöldverður. Þeir hörðustu héldu svo niður Laugaveg og komu meðal annars við í húsi Máls og menningar. Og gott er ef einhverjir enduðu ekki kvöldið á Bæjarins bestu.
Hreint frábært kvöld og kann ég þeim Hjalta íþróttafræðingi og Smára sálfræðingi í skemmtinefndinni, bestu þakkir fyrir framtakið og auðvitað okkur hinum fyrir þátttökuna.
Meðfylgjandi mynd var tekin í vorferðinni í gærkvöldi.

Heilsueflandi vinnustaður.
Nú er verkefnið “Hjólað í vinnuna” komið í gang þetta árið og vil ég nota tækifærið og hvetja sem allra flesta til að taka þátt.
Af þessu tilefni ræddi framkvæmdastjorn á dögunum tillögur um Reykjalund sem heilsueflandi vinnustað en það passar sannarlega við þá ímynd sem við viljum hafa af Reykjalundi. Samkvæmt skilgreiningu er Heilsueflandi vinnustaður heildræn nálgun sem hefur það að markmiði að stuðla að betri heilsu og vellíðan fólks á vinnustöðum. Um er að ræða tæki í formi lista yfir viðmið sem vinnustaðir geta nýtt sér til að tryggja að þeir nálgist heilsueflingu frá öllum hliðum og miði við og stuðli þar með að vellíðan allra. 
Sjá nánar: https://www.heilsueflandi.is/media/11364/leidbeiningar-heilsueflandi-vinnustadur.pdf
Í tenglsum við þetta hefur verið rætt um stofnun “Heilsuráðs Reykjalundar” sem skoða myndi leiðir hvernig eflum við heilsu starfsfólks og setti fram tillögur hvernig starfsfólk gæti nýtt sér möguleika til heilsueflingar á Reykjalundi ennþá betur en nú er.
Við munum setja þetta allt saman betur í gang í sumar og fá þá að auglýsa eftir áhugasömum aðilum úr starfsmannahópnum til að þróa þetta með okkur.

Stjórnir SÍBS og Reykjalundar funda saman.
Nýlega fór fram vinnufundur stjórna SÍBS og Reykjalundar endurhæfingar ehf. ásamt forstjóra Reykjalundar og framkvæmdastjóra SÍBS, en ætlunin er að halda slíka samráðsfundi að minnsta kosti tvisvar á ári. Á fundinum var farið yfir ýmis mikilvæg atriði eins og nánari samvinnu, stefnumótun Reykjalundar og áherslur næstu ára. Einnig var rætt um framtíð endurhæfingarþjónustu og ekki síst húsnæðismál Reykjalundar frá ýmsum hliðum enda er þar mikið verk að vinna, ekki síst varðandi aðkomu stjórnvalda að málum. Fundurinn heppnaðist mjög vel og var meðfylgjandi mynd tekin á fundinum.

Góða og gleðilega helgi!
Pétur

 

Til baka