Hryllingssaga sem gerist á Reykjalundi.
Við á Reykjalundi tengjumst samfélaginu með ýmsum hætti. Mosfellski rithöfundurinn Ólafur Unnsteinsson heimsótti Reykjalund á dögunum en tilefnið var að afhenda Pétri forstjóra eintak af skáldsögunni „Hús hinna sívölu ganga.“ Sagan er mögnuð hryllingssaga í anda Stephen King sem gerist einmitt inn á Reykjalundi. Söguþræði bókarinnar er annars lýst svo: „Samvöxnu tvíburarnir Lotta og Myrra leita skjóls á Reykjalundi undan ofstækisfullum föður þeirra og sértrúarsöfnuðinum sem hann leiðir. Þar vonast þær eftir vísbendingum um blóðmóður þeirra í skiptum fyrir hættulega skurðaðgerð. Jafnframt verða þær að forðast að verða næstu fórnarlömb skæramorðingjans alræmda. Kostulegar persónur gæða söguna hrollvekjandi lífi.“
Við óskum Ólafi kærlega til hamingju með bókina – svo er bara spurning hverjir þora að lesa og ganga einir um gangana í myrkrinu…