Vísindi á Reykjalundi.
Í byrjun apríl fór fram árleg ráðstefna European Society of Cardiology um forvarnir gegn hjarta- og æðasjúkdómum (e. Preventive Cardiology) í Mílanó á Ítalíu. Á meðal þátttakenda var Telma Sigþrúður Guðbjarnadóttir, læknanemi við Háskóla Íslands, sem kynnti niðurstöður úr BS-verkefni sínu á veggspjaldi.
Rannsóknin bar heitið “The effects of cold weather on cardiovascular parameters during walks in coronary artery disease: a pilot study” og var unnin á Reykjalundi undir leiðsögn Karls Kristjánssonar, yfirlæknis hjartateymis Reykjalundar og lektors við Læknadeild Háskóla Íslands, Mörtu Guðjónsdóttur, rannsóknarstjóra á Reykjalundi og dósents við sömu deild og Ingu Þráinsdóttur hjartalæknis.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort svörun einstaklinga með kransæðasjúkdóma við gönguþjálfun utandyra að vetrarlagi — mæld með blóðþrýstingi, hjartsláttartíðni, mæði og hjartsláttartruflunum — væri frábrugðin svörun við sambærilegri áreynslu innandyra.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Telmu ásamt Karli og Mörtu leiðbeinendum sínum við veggspjaldið á ráðstefnunni.