Föstudagsmolar forstjóra 2. maí 2025.
Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,
Gleðilegt sumar!
Þar sem þetta eru fyrstu föstudagsmolarnir þetta sumarið finnst mér vel við hæfi að byrja á því að óska ykkur gleðilegs sumars. Vorið og sumarið er alltaf skemmtilegur tími í mínum huga. Jafnframt þakka ég kærlega fyrir skemmtilegan og lærdómsríkan vetur. Það hefur heldur betur verið líf og fjör í starfinu í vetur og afmælisár Reykjalundar hefur farið vel af stað. Það er sannarlega skemmtilegt sumar framundan í Reykjalundarlífinu og hlakka ég til að takast á við spennandi áskoranir með ykkur, sem bíða okkar.
Aðalfundur starfsmannafélags Reykjalundar.
Á mánudaginn fór fram aðalfundur starfsmannafélags okkar. Það helst nú oftast í hendur að vera með öflugt og fjörugt starfsmannafélag og góðan starfsanda á vinnustað. Á aðalfundinum var sýnt skemmtilegt myndband frá helstu viðburðum starfsársins og það minnti okkur heldur betur á hversu margt hefur verið að gerast á vegum félagsins undanfarið. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka fráfarandi stjórn kærlega fyrir samstarfið og sitt frábæra framlag við að gera góðan Reykjalund ennþá betri. Einnig vil ég senda nýrri stjórn bestu kveðjur og hlakka til samstarfsins en þarna er glæstur hópur á ferð sem mun án efa gera árið mjög skemmtilegt.
Meðfylgjandi mynd var einmitt tekin á aðalfundinum af fráfarandi stjórn en á myndinni eru frá vinstri:
Þuríður, Ásdís, Þorbjörg, Helena, Erla og Jónína.
Vitundarvakning um öryggimál.
Að lokum langar mig að hrósa öryggisnefndinni okkar en nefndin ásamt ýmsum fleirum, stendur þessa dagana fyrir mikilli vitundarvakningu um öryggimál á vinnustaðnum. Almennur fræðslufundur verður mánudaginn 26. maí en jafnframt hefur nefndin verið að fara yfir fjölmörg öryggimál í daglegum störfum, fara yfir öryggisbúnað og skipulag svo dæmi séu tekin. Öryggismál eru málaflokkur sem ber sannarlega að sýna virðingu og því hvet ég okkur öll til aukinnar meðvitundar um öryggismál í umhverfinu okkar og hafa skoðanir á þeim.
Góða og gleðilega helgi!
Njótið helgarinnar!
Pétur