Að takast á við kvíða

Mynd af Að takast á við kvíða
Bókin „Að takast á við kvíða“ (Controlling Anxiety) sem er eftir Melanie Fennell og Gillian Butler var þýdd, með leyfi höfunda, af sálfræðingunum Gunnhildi L. Marteinsdóttur, Ingu Hrefnu Jónsdóttur og Odda Erlingssyni. Bókin tilheyrir sjálfhjálparbókaflokk Oxford Cognitive Therapy Centre og byggir á hugrænni atferlismeðferð. Farið er í eðli kvíða og hugsanir sem viðhalda kvíðanum. Síðan er þremur skrefum lýst til að ná stjórn á kvíða sem fela meðal annars í sér að þekkja kvíðavekjandi hugsanir, finna rök gegn þeim eða raunhæfari og hjálplegri hugsanir og að lokum að prófa kvíðavekjandi hugsanir í verki. Bókin skiptist í 4 kafla og er 36 blaðsíður, auk þess eru 5 hugsanaskrár í viðauka sem hægt er að nota til að setja inn dæmi úr eigin lífi og vinna með kvíðavekjandi hugsanir.












Verð:544 kr.