HAM - Handbók

Mynd af HAM - Handbók
Margir glíma við þunglyndi og kvíða á ýmsum stigum og allir kannast við að verða stundum daprir eða að kvíða fyrir erfiðum aðstæðum. Ef einkennin eru mjög alvarleg eða langvinn og eru farin að hafa víðtæk áhrif á daglegt líf þarf að leita aðstoðar fagfólks. Á fyrri stigum getur sjálfshjálparefni komið að góðu gagni og einnig til að viðhalda bata. Í hugrænni atferlismeðferð eru kenndar aðferðir til að takast á við þunglyndi og kvíða sem fólk getur gripið til hvenær sem á þarf að halda. Markmiðið er að draga úr neikvæðum hugsunum og auka virkni. Áttunda útgáfa bókarinnar kom út árið 2017 á vegum geðheilsusviðs Reykjalundar, í ritstjórn voru Inga Hrefna Jónsdóttir, Rósa María Guðmundsdóttir, Vera Siemsen og Þórunn Gunnarsdóttir. Allt efni bókarinnar er einnig aðgengilegt á HAM-vefsíðunni.



















Verð:6.563 kr.