Hjartateymi
Hjartateymi Reykjalundar er þverfaglegt og í því starfa félagsráðgjafi, heilsuþjálfari, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, læknar, næringarfræðingur, sálfræðingur, sjúkraþjálfarar og sjúkraliðar.
Skipulögð hjartaendurhæfing hefur verið starfrækt á Reykjalundi frá árinu 1982 og hófst þá með formlegum hætti endurhæfing fólks með hjartasjúkdóma hér á landi.
Hjartaendurhæfing er skilgreind þannig að í henni felist allt það sem bætir líkamlegt, sálrænt og félagslegt ástand einstaklings með hjartasjúkdóm, með það að markmiði að hann nái að lifa eins eðlilegu lífi og mögulegt er í umhverfi sínu. Meginþættir endurhæfingarinnar eru þjálfun, aðstoð við sálræna og félagslega aðlögun, meðferð áhættuþátta og fræðsla. Endurhæfing er alltaf hluti heildrænnar meðferðar. Starfað er eftir gildum og grundvallarstefnu hjartateymis.
Grundvallarstefna hjartateymis er að veita faglega hjartaendurhæfingu sem byggir á niðurstöðum nýjustu viðurkenndra vísindarannsókna. Að hjartaendurhæfingunni kemur teymi fólks sem með þverfaglegri nálgun vinnur með skjólstæðingnum að því að ná sem bestum lífsgæðum með endurhæfingu í besta mögulega starfsumhverfi.
frá kl.14:00 til 15:00
Þórunn Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Dagný Finnsdóttir, sjúkraliði
sími: 585-2000
Allir sem koma í hjartaendurhæfingu þurfa að hafa með sér eftirfarandi:
- Íþróttabuxur
- Stuttermaboli
- Innanhússtrigaskó
- Útifatnað / klæðnaður eftir veðri: a) Gott að hafa vatns- og vindþéttan galla. b) Útigönguskó.
- Sundföt og baðhandklæði. Ágætt að merkja hvorutveggja.
- Vatnsbrúsa
- Lyfjakort eða lyfin þín fyrir fyrsta læknaviðtal.
Ef gist er á staðnum er auk ofantalinna atriða, ágætt að taka með sér inniskó, vekjaraklukku, snyrtidót og lítið útvarp/hátalara sé þess óskað. Einnig þarf að hafa með sér sín eigin lyf á meðan dvöl stendur.
Ef um dagdvöl er að ræða færð þú aðstöðu til að skipta um föt og skáp til að geyma í töskuna þína. Þarft ekki að greiða fyrir dvölina eða máltíðir, sem er hádegisverður og síðdegiskaffi.
Gildi
- Samvinna
- Þekking
- Virðing
- Lífsgæði