Hollustufæði
Í endurhæfingu á Reykjalundi er lögð áhersla á grunnþætti heilbrigðra lífshátta. Þar skiptir heilsusamlegt mataræði gríðarlega miklu máli. Samkvæmt síðustu skýrslu WHO „Global Burden of Disease“ frá árinu 2012, voru „glötuð góð æviár“ Íslendinga tæp 68 þúsund talsins á árinu 2010, þar af var mataræðið stærsti þátturinn og olli tæplega 8000 „glötuðum góðum æviárum“(1).
Í mötuneyti Reykjalundar er leitast við að hafa matinn heilnæman og ferskan. Matseðilinn samanstendur af fjölbreyttum fisk-, kjöt- og grænmetisréttum, ásamt salatbar, ávöxtum og samlokum. Eldað er á heilsusamlegan máta og ekki notuð unnin matvara. Mötuneytið skiptist í eldhús sem er GÁMES vottað og bjartan og rúmgóðan matsal.
Í mötuneytinu starfar matreiðslumeistari með fimm aðstoðarkonum, saman framreiða þau um 52.800 heitar máltíðir yfir árið fyrir sjúklinga, starfsfólk og gesti, ásamt því að sjá um veitingar á ýmsum fundum og viðburðum á vegum Reykjalundar.
Stuðst er við almennar ráðleggingar Landlæknis.
- Ferskur fiskur tvisvar sinnum í viku.
- Mikið úrval af soðnu og fersku grænmeti að vali hvers og eins
- Aðgengi að heilkornavörum, hnetum, fræjum og baunum
- Viðbættur sykur er í algjöru lágmarki
- Salt er takmarkað í matreiðslu
- Lýsi er á boðstólnum í morgunverði
- Boðið er uppá jurtaolíur sem dressingu
Viðmiðunardiskur er í boði í matsalnum fyrir þá sem vilja gæta að skammtastærðum matarins. Notalegt og nærandi umhverfi matsalarins leggur grunn að góðum árangri í meðferðinni á Reykjalundi. Eldhúsið er GÁMES vottað.
Greinar í SÍBS blaðinu:
- Holdafar og heilsa (2020)
- Úr hverju deyjum við? (2014)