Algengar spurningar

Hvernig  kemst ég í endurhæfingu á Reykjalundi?
Læknir þarf að senda beiðni um endurhæfingu.

Hvenær er komið að mér í endurhæfingu?
Best er að hringja á símatíma í hjúkrunarstjóra. Símatímar sjást á síðum teymanna.

Hvað er meðferðin löng?
Lengd meðferðar er breytileg eftir meðferðarsviðum. Því er best að leita upplýsinga á viðkomandi meðferðarsviði.

Þarf að greiða fyrir meðferð á Reykjalundi?
Sjúklingar sem fá meðferð á dagdeild eða sólarhringsdeild þurfa ekki að greiða fyrir meðferðina, en sjúklingar á göngudeild greiða fyrir hverja komu.

Er hægt að fá ferðakostnað endurgreiddan?
Hægt er að sækja um endurgreiðslu á ferðakostnaði til Sjúkratrygginga Íslands.

Hvar á ég að fara inn þegar ég kem á göngudeild eða til innskriftar?
Móttakan er við aðalinngang.

Hvenær byrjar dagskráin á morgnana?
Dagskráin hefst klukkan 8 á morgnana. Hver sjúklingur fær sína stundaskrá.

Er möguleiki á að gista á Reykjalundi ef ég kem í meðferð á dagdeild?
Já, ef aðstæður eru þannig, til dæmis vegna búsetu eða aðstæðna heima við.

Er hægt að panta einbýli?
Nei.

Þarf að greiða fyrir gistingu á Reykjalundi?
Reykjalundur mun þann 1. október 2019 hefja gjaldtöku svokallaðs gistigjalds á grunni reglugerðar um dvöl á sjúkrahóteli nr. 429/2019.
Gjald fyrir gistinótt er 1.440 kr. Sjúklingar sem kjósa að vera í gistingu á Reykjalundi í endurhæfingarmeðferð sinni greiða gjaldið. Greiða þarf fyrir skráðar gistinætur.
Gert er ráð fyrir að gistigjaldið sé staðgreitt í móttöku Reykjalundar í lok endurhæfingarmeðferðar á Reykjalundi. Einnig verður hægt að greiða með svokölluðum léttgreiðslum sem eru jafnar mánaðarlegar og vaxtalausar afborganir í allt að 6 mánuði, til þess að notfæra sér léttgreiðslur þarf sjúklingur að hafa kreditkort.

Greiðslur gistigjalds telja ekki inn í greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Afsláttarréttindi sjúklinga hafa því engin áhrif á upphæð gistigjaldsins
.

Get ég verið á Reykjalundi um helgar?
Flestir fara af staðnum um helgar. Ef aðstæður eru þannig þá er hægt að fá gistingu í samráði við starfsfólk á viðkomandi hjúkrunardeild. Þetta á þó ekki alltaf við, t.d. yfir sumarlokun.

Er sérstakur heimsóknatími?
Nei, það er ekki sérstakur heimsóknatími, en mælst er til að gestir komi í heimsókn eftir að meðferð lýkur klukkan 16 á daginn.

Er hægt að skreppa frá í útréttingar ef þörf krefur?
Mælt er með því að sjúklingar fari í útréttingar eftir að dagskrá lýkur klukkan 16 á daginn.

Er aðstaða til að þvo einkafatnað?
Það er ekki aðgengi að þvottavélum, en einkaþvottur af sjúklingum er þveginn af þeim gegn vægu gjaldi. Þvottamiðar eru til sölu í móttöku.

Get ég fengið læsta hirslu?
Já, hægt er að fá læstan skáp.

Er hægt að komast á netið á Reykjalundi?
Já, á Reykjalundi er þráðlaust gestanet, einnig er aðgengi að tölvu nálægt móttöku.

Er útvarp inni á herberginu?
Nei, en hægt er að taka með sér lítið útvarpstæki.

Er sjónvarp inni á herberginu?
Nei, en sjónvörp eru á setustofum.

Er hraðbanki á Reykjalundi?
Nei, en þrír hraðbankar eru í miðbæ Mosfellsbæjar.

Þarf að greiða fyrir mat á Reykjalundi?

Allar máltíðir eru innfaldar í meðferð. Sjúklingar sem eru á dagdeild eða sólarhringsdeild þurfa ekki að greiða fyrir máltíðir.

Sjúklingar á göngudeild og gestir geta keypt matarkort í móttöku.

Get ég fengið afrit af minni sjúkraská?

Já, það er hægt, sjá beiðni og reglur hér