Hagnýtar upplýsingar fyrir sjúklinga
Til að komast í meðferð þarf beiðni frá lækni. Sjúklingur fer á biðlista og haft er samband við hann þegar á að innskrifa hann. Flestir sjúklingar innskrifast á mánudagsmorgni. Í vikunni fyrir innskrift hringir hjúkrunarfræðingur í sjúkling og lætur í té upplýsingar um endurhæfinguna. Á fyrstu dögunum fer sjúklingur í komuviðtal hjá lækni og hjúkrunarfræðingi og hittir þjálfara. Sjúklingur fær síðan stundaskrá í hendur og þjálfunin hefst.
Upplýsingar um biðlista
Farangur
Gott er að hafa eftirfarandi lista til hliðsjónar þegar sjúklingur undirbýr endurhæfingu á Reykjalundi:
Innifatnaður: Íþróttafatnaður, bolir, tveir gallar ("jogging-gallar"). Góðir íþróttaskór fyrir innileikfimi. Nærföt, sokkar, sundföt og hársápa.
Útifatnaður: Vatns- og vindheld hlífðarföt. Gönguskór og mannbroddar. Húfa, vettlingar og trefill. Endurskinsmerki.
Matsalur
Matsalurinn er á fyrstu hæð. Þar er framreiddur matur fyrir sjúklinga og starfsfólk. Matarmiðar fyrir gesti eru seldir á símavakt.
Engir ákveðnir heimsóknartímar eru á Reykjalundi. Algengt er að líkamlegri þjálfun ljúki kl. 16.00 á daginn, en stundum eru aðrir meðferðartímar seinnipart dags. Því er æskilegt hafa samráð við sjúklinginn varðandi heppilegan tíma fyrir heimsóknir. Hægt er að hringja í sjúklinga sem dvelja á Reykjalundi með því að biðja um samband við þá gegnum skiptiborð.
Heimsóknartímar
Símar
Símasjálfsalar eru á 1. hæð hjá símavakt. Í þá er hægt að setja bæði mynt og símakort. Símakort eru seld á símavakt.
Bókastofa
Opin bókastofa er í Norðurstofu Reykjalundar. Þar er að finna ágætt úrval bóka og tímarita sem hægt er að fá að láni. Engin vakt er á bókastofunni. Sjúklingum er heimilt að taka með sér bækur til að lesa uppi á herbergi og þeir bera sjálfir ábyrgð á að skila þeim aftur í bókastofu fyrir útskrift.
Dagblöð og tímarit
Í Norðurstofu Reykjalundar liggja frammi dagblöð og tímarit sem ætluð eru til lestrar þar.
Ferðakostnaður sjúklinga
Við ákveðnar aðstæður eiga sjúklingar rétt á að fá greidda heimferð um helgar. Sjúklingar eru hvattir til að kynna sér það á vefsíðu Tryggingastofnunar Ríkisins