01.11.2013

Hollvinasamtök Reykjalundar verða stofnuð 02.11.2013

Hollvinasamtök Reykjalundar verða stofnuð nk. laugardag, 2. nóvember, að viðstöddum góðum gestum á hátíðarfundi á Reykjalundi í Mosfellsbæ kl. 14.

Undirbúningsaðilar hvetja Mosfellinga og landsmenn alla til að ganga liðs við hollvinasamtök stærstu endurhæfingarmiðstövar Íslands sem þjónar landsmönnum öllum. Á Reykjalundi hafa þúsundir landsmanna náð heilsu á ný eftir áföll í lífinu. Meðalaldur sjúklinga er einungis um 50 ár og má því ljóst vera hversu mikilvægu samfélagshlutverki Reykjalundur gegnir í endurhæfingu sem leiðir til þess að einstaklingar komast á ný út á vinnumarkaðinn.

Dagskrá:

  • Ávarp bæjarstjóra Mosfellsbæjar
  • Kynning á starfsemi Reykjalundar
  • Lög hollvinasamtaka: Tillaga að skipan stjórnar, árgjald
  • Tónlistaratriði
  • Fundarlok


Fundarstjóri verður Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður

Veitingar í fundarlok.
Allir velkomnir.

Skráðu þig sem hollvin núna

 

Til baka