Minningarkort

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Reykjalundar í síma 585-2147 ef óskað er eftir að senda minningarkort.

Með því að smella hér má sjá mynd af minningarkortinu.

 

Oddssjóður Reykjalundar


"Oddssjóður" er stofnaður af stjórn Reykjalundar og er hún jafnframt stjórn sjóðsins. Sjóðurinn tengist alfarið starfsemi Reykjalundar samkvæmt ákvæðum skipulagsskrár.

SKIPULAGSSKRÁ


fyrir sjóð til minningar um Odd Ólafsson yfirlækni á Reykjalundi og ber nafn hans

ODDSSJÓÐUR

1.gr.
Stjórn Vinnuheimilisins að Reykjalundi stofnar sjóðinn og leggur fram sem stofnframlag samtals krónur 650.000.-

2.gr.
Tilgangur sjóðsins er að efla fræðslu, rannsóknir og aðra vísindastarfsemi á Reykjalundi og veita fé til kaupa á tækjum og búnaði til notkunar við endurhæfingu á stofnuninni.

3.gr.
Tekjur sjóðsins eru minningagjafir og framlög frá velunnurum Reykjalundar auk vaxta og annarra tekna af eignum sjóðsins. Engin kvöð er um bindingu stofnframlags eða síðari framlaga í sjóðinn.

4.gr.
Sjóðurinn skal vera í vörslu Reykjalundar og ávallt ávaxtaður með hagkvæmasta hætti. Sjóðurinn skal vera aðgreindur frá öðrum fjárhag stofnunarinnar. Endurskoðandi Reykjalundar er endurskoðandi sjóðsins.

5.gr.
Stjórn Reykjalundar er jafnframt stjórn sjóðsins og tekur hún ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum. Einfaldur meirihluti nægir til ákvörðunar um úthlutun.
Stjórnin skal halda sérstaka bók um framlög með nöfnum gefenda annars vegar og ákvörðun um úthlutanir hins vegar. Þar skal einnig skrá hvort framlagi fylgir kvöð eða ósk um ákveðna notkun og ber að hlíta slíku.

6.gr.
Umsóknir um framlag úr sjóðnum skulu rökstuddar af umsækjanda og staðfestar af yfirlækni og framkvæmdastjóra Reykjalundar.
Óheimilt er að veita einstaklingi lán úr sjóðnum.

7.gr.
Komi fram tillaga um breytingu á skipulagsskrá þessari skal hún borin upp á stjórnarfundi og telst samþykkt ef allir stjórnarmenn greiða henni atkvæði.
Sama gildir ef tillaga kemur fram um að leggja sjóðinn niður, en í því tilfelli skulu fjármunir og aðrar eignir sjóðsins renna óskiptar til Reykjalundar.

Gert á Reykjalundi 26. apríl 1991

Í stjórn Vinnuheimilisins að Reykjalundi
(sign)