Stefnumótandi lykilþættir:


Efla starfsemi meðferðar- og þjónustusviða m.a. með beinni aðkomu stjórnenda þeirra að framkvæmdaráði.
Styrkja starfsemi teyma með eflingu á innra skipulagi þeirra. 
    -Hvert teymi hafi teymisstjórn, teymisstjóra og yfirlækni.
Bæta upplýsingakerfi, skráningar og árangursmælingar. 
    -Komið verði upp sameiginlegri rafrænni sjúkraskrá. 
    -Skáningar verið samræmdar þar sem hægt er og aðgengilegar í gagnagrunni. 
    -Kostnaðargreining verði efld. Efla göngudeildarþjónustu. 
    -Auka þverfaglega forskoðun til að undirbúa meðferð með og án innlagnar 
     og gera biðlista markvissari. 
    -Ráðgjöf og verkefni fyrir heilsugæslu og heilbrigðisstofnanir verði aukin. 
    -Eftirfylgd á öllum meðferðarsviðum verði aukin til að tryggja meðferðarheldni.
Vera virk í forvörnum.
Efla rannsóknarstarf og vísindasjóð. 
    -Halda uppi virkri vísindastefnu. 
    -Efla rannsóknartengsl við háskólana, aðrar menntastofnanir og heilbrigðisstofnanir.
Vinna að því að Reykjalundur verði viðurkenndur sem kennslustofnun. 
    -Gerðir verði kennslusamningar við háskóla, aðrar menntastofnanir og heilbrigðisstofnanir.
Hafa skýra og aðgengilega starfsmannastefnu.
Tryggja að húsakostur og aðstaða sé í samræmi við þarfir á hverjum tíma. 
    -Koma þarf til móts við auknar kröfur um aðbúnað sjúklinga. 
    -Bæta vinnuaðstöðu og tækjabúnað starfsmanna.