STARFSMANNASTEFNA

 

FRUMKVÆÐI – VIRÐING – ÁRANGUR

  

1. mars 2006

 

Starfsmannastefna Reykjalundar

Reykjalundi er sett það markmið að veita alhliða endurhæfingarþjónustu til að bæta færni, virkni og þátttöku skjólstæðinga í daglegu lífi.   Reykjalundur stefnir að því  að vera leiðandi í rannsóknum og vísindastarfi sem tengjast endurhæfingu og taka virkan þátt í menntun heilbrigðisstétta á þessu sviði.

 

Starfsmenn Reykjalundar eru helsta auðlind stofnunarinnar og eftirfarandi starfsmannastefna miðar að því að þessi markmið náist.

           

            Ráðningar.

·        Lögð er áhersla á að ráða til starfa hæfustu starfsmenn sem völ er á. 

·        Við val á starfsmönnum er metin menntun, reynsla, færni og hæfni til mannlegra samskipta.

·        Starfsmenn skulu vera vel upplýstir um verkefni sín og skyldur.

·        Ráðningasamningur og/eða starfslýsingar skulu vera skriflegar og undirritaðar af starfsmanni og yfirmanni.

 

Kjaramál.

·        Reykjalundur fylgir gildandi kjara- og stofnanasamningum á hverjum tíma.

·        Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins taka til starfsmanna Reykjalundar svo sem við getur átt. 

·        Lögð er áhersla á að farið sé eftir kjarasamningum við ákvörðun um röðun í launaflokka og framgang í starfi.

 

Starfsþróun og fræðsla.

·        Reykjalundur mun leitast við að gefa starfsmönnum tækifæri á framgangi í starfi með markvissri fræðslu og þjálfun og skapa þeim skilyrði til  virkrar endur-menntunar.

·        Stefnt skal að eflingu rannsókna- og vísindastarfsemi tengdri endurhæfingu.

·        Reykjalundur skal taka virkan þátt í menntun heilbrigðisstétta.

 

      Samskipti.

·        Starfsmenn skulu sýna skjólstæðingum stofnunarinnar virðingu og hlýtt viðmót og veita þeim góða faglega þjónustu.

·        Starfsmenn eru bundnir þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skal fara lögum samkvæmt sbr. ákvæði 18. gr. l. 70/1996.

·        Starfsmenn skulu virða persónu, skoðanir og þekkingu samstarfsmanna sinna og hafa vilja og hæfni til samstarfs.

·        Framkoma sem veldur öðrum vanlíðan eða óöryggi verður ekki liðin.

·        Stefnt skal að því að halda starfsmönnum vel upplýstum um þau málefni sem eru á döfinni á hverjum tíma bæði með því að nota upplýsingakerfi stofnunarinnar svo og með almennum starfsmannafundum þegar þurfa þykir.

·        Upplýsingahandbók starfsmanna skal vera aðgengileg starfsmönnum.  Hún hefur að geyma allar þær upplýsingar sem nýjum starfsmönnum eru nauðsynlegar.

Jafnréttismál.

·        Á Reykjalundi skal ríkja jafnrétti. Óheimilt er að mismuna fólki eftir aldri, kynferði, kynþætti, efnahag, fötlun, stjórnmálaskoðunum eða trúarskoðunum.

·        Launajafnrétti skal vera milli kynja.

Vinnuumhverfi, heilsuvernd og öryggismál.

·        Stuðla skal að því að umhverfi og vinnuaðstaða tryggi öryggi og vellíðan starfsfólks við vinnu.  Tryggja skal að starfsmenn fái nauðsynlegan stuðning og handleiðslu við krefjandi störf.

·        Reykjalundur leggur áherslu á að starfsmenn viðhaldi heilsu sinni með heilbrigðum lifnaðarháttum. Aðstaða til þjálfunar og almennrar heilsuræktar á Reykjalundi stendur starfsmönnum til boða, þeim að kostnaðarlausu, samkvæmt nánari reglum.

·        Reykingar starfsmanna svo og hvers konar vímuefnanotkun er óheimil í vinnutíma í og við Reykjalund.

·        Starfsmönnum ber að kynna sér öryggismál og eldvarnir Reykjalundar og kunna að bregðast við ef hættu ber að höndum.

 

Fjölskylduvæn starfsmannastefna og félagsmál.

·        Reykjalundur vill auðvelda starfsmönnum sínum að samræma vinnuskyldu og fjölskyldumál með gagnkvæmum sveigjanleika og leitast við að aðlaga starfshlutfall að þörfum stofnunarinnar og getu starfsmanna.

·        Reykjalundur vill efla samstarf og samkennd starfsmanna m.a. með stuðningi við starfsmannafélag stofnunarinnar. 

 

Gildistími og endurskoðun.

·        Framkvæmdastjórn skal endurskoða starfsmannastefnuna svo oft sem þurfa þykir og leita eftir umsögnum og ábendingum starfsmanna.

 

 

Reykjalundi 1. mars 2006

 

 

 

                                    Björn Ástmundsson                  Hjördís Jónsdóttir

 

                                    Jón M. Benediktsson                Lára M. Sigurðardóttir