Gildi Reykjalundar:
Frumkvæði - Virðing - Árangur
·Frumkvæði kemur fram í:
1. Þekkingarleit innan endurhæfingar, þróunar og nýsköpunar, sem tekur mið af
þörfum skjólstæðinga.
2. Miðlun þekkingar og reynslu til annarra.
3. Þátttöku í faglegri sem og þjóðfélagslegri umræðu um málefni endurhæfingar.
·Virðing endurspeglast í:
1. Afstöðu okkar gagnvart gildum, viðhorfum og væntingum skjólstæðinga.
2. Afstöðu okkar gagnvart störfum og skoðunum hvers annars.
3. Afstöðu okkar til endurhæfingar sem fagreinar.
·Árangur felst í að ná settum markmiðum.