Reykjalundarkórinn.
Reykjalundarkórinn er blandaður kór, stofnaður 21. nóvember 1986 af Starfsmannafélagi Reykjalundar. Tilgangurinn með stofnun kórsins var að efla félagslíf og auka kynni meðal starfsstétta Reykjalundar.
Fyrsti stjórnandi kórsins var Lárus Sveinsson, trompetleikari. Núverandi stjórnandi er Íris Erlingsdóttir söngvari og söngkennari. Meðleikari er Anna Rún Atladóttir, píanó og fiðluleikari. Efnisval er fjölbreytt og skemmtilegt, en sérstakt dálæti hefur kórinn á Ave Maríum og reynir að bæta í safnið á hverju ári.
Kórinn hefur farið í tónleikaferðir innanlands og til útlanda. 1997 fór kórinn á kóramót í Uddevalla í Svíþjóð. Árið 2000 fór kórinn í velheppnaða ferð til Austurríkis og 2003 í aðra velheppnaða ferð til Tékklands og Ungverjalands. Nú vorið 2005 fór kórinn til Kaupmannahafnar í 4 daga ferð. 
Kórinn hefur tekið þátt í útgáfu á tónlist og á innlegg á geisladiski sem gefinn var út af TÓNAL árið 1990, á diskinum Í Mosfellsbæ sem var gefinn út 1999, einnig diskinum Syngjum saman, sem skólahljómsveit Mosfellsbæjar gaf út 2003. Í desember 2005 gaf kórinn út geisladisk í tilefni 20 ára afmæliskórsins árið 2006. Á diskinum eru lög sem kórinn valdi, sem sýnishorn af því sem hann hefur sungið gegnum árin. Kórinn hefur alls sungið um tíu mismunandi útsetningar af Ave Maríum. Ave María eftir breska tónlistarmanninn Christopher Field var samin sérstaklega fyrir Reykjalundarkórinn og kemur nú út í fyrsta sinn. Einnig er gaman að geta þess að Söngur S.Í.B.S. eftir Oddgeir Kristjánsson hefur ekki komið út áður. Reykjalundur hefur styrkt kórinn um árabil og Mosfellbær styrkti einnig útgáfu þessa disks. Þeim eru færðar bestu þakkir fyrir.
Á aðventunni heldur Reykjalundarkórinn alltaf eina tónleika á Reykjalundi og aðra í kirkju. Félagslíf innan kórsins er mjög líflegt og skemmtilegt. Farið hefur verið í hestaferð á vorin og í sumarbústað á haustin og árlega er haldin árshátíð. Makar kórfélaga taka virkan þátt í félagsstarfinu og eru gjarnan kallaðir Klappliðið. Félagar eru um 30 og eru nýir félagar ávallt velkomnir.
Æfingar eru á miðvikudögum kl. 20 22.30 og einn laugardag í mánuði kl. 10 14 og fara þær fram í stóra salnum á Reykjalundi.
Stjórn Kórsins: Páll Sturluson, formaður, netfang pall@iskraft.is, Jón H. Guðjónsson, gjaldkeri. Olga Björk Guðmundsdóttir sími 585-2086, Kristín Jóhannsdóttir og Guðný K. Erlingsdóttir. Varamenn eru Kristján Halldórsson og Sigurður L. Einarsson.