Starfsmannafélag

Starfsmannafélag Reykjalundar var stofnað þann 22. apríl 1986. Félagar eru þeir starfsmenn Reykjalundar sem óska eftir inngöngu.

 

Tilgangur

Í lögum starfsmannafélagsins segir um tilgang þess:
"Tilgangur félagsins er að efla kynni meðal starfsmanna á hinum ýmsu deildum staðarins. Gangast fyrir fræðslustarfsemi meðal félagsmanna. Hafa forgang um að félagsmenn geti stundað félagslega starfsemi á sem hagkvæmastan og kostnaðarminnstan hátt."

Félagslíf

Á vegum félagsins hafa starfað ýmsar nefndir svo sem ferðanefnd, allsherjarnefnd, umhverfisnefnd og árshátíðarnefnd sem sér um allan undirbúning og framkvæmd árshátíðar Reykjalundar.

Starfsmannafélagið stendur fyrir ýmsum námskeiðum og skipuleggur leikhúsferðir. Þetta er niðurgreitt fyrir félaga.

Fréttabréfið Reykur kemur út mánaðarlega á vegum starfsmannafélags og starfsmannaráðs Reykjalundar.

Reykjalundarkórinn

var stofnaður 1986.

Félagar fá félagsskírteini og njóta afsláttarkjara hjá ýmsum verslunum og fyrirtækjum gegn framvísun þess.

Sumarbústaður starfsmannafélagsins í Kjarnalundi á Akureyri.

Rekstur orlofshúsa

Starfsmannafélagið á og rekur tvö orlofshús. Annarsvegar í Hraunborgum í Grímsnesi og hinsvegar í Kjarnaskógi við Akureyri. Hús þessi leigjast félagsmönnum viku í senn á sumrin en á veturna eru þau leigð um helgar.

Núverandi formaður starfsmannafélags Reykjalundar er Jónína Sigurgeirsdóttir jonina@reykjalundur.is.