Talþjálfun

Þórunn Hanna Halldórsdóttir
Talmeinafræðingur
thorunnh@reykjalundur.is
Hluti þeirra sjúklinga sem koma á Reykjalund þarf á talþjálfun að halda og er þá ýmist veitt einstaklings- eða hópmeðferð. Í talþjálfun kemur fólk með ýmsar tal- og máltruflanir, t.d. málstol, þvoglumæli og raddveilur. Fólk með parkinsonsveiki fær sérstaka raddþjálfun í hóp. Talmeinafræðingur greinir og veitir ráðgjöf vegna kyngingartregðu, sé þess óskað. Snar þáttur í starfi talmeinafræðings er ráðgjöf til aðstandenda sjúklinga sem fengið hafa máltruflanir, t.d. eftir heilablóðfall. Fólk sem á við ýmiskonar lestrarvanda að etja leitar í vaxandi mæli aðstoðar talmeinafræðings.