Sjúkraþjálfun

Sigrún Benediktsdóttir
Yfirsjúkraþjálfari
sigrunben@reykjalundur.is
Markmið sjúkraþjálfunar er að auka og viðhalda styrk, hreyfigetu og færni sjúklings, kenna leiðir til að fyrirbyggja tap á þessum þáttum og minnka verki. Meðferð er ýmist í hópum eða einstaklingsbundin, allt eftir því hvað við á hverju sinni.
Einstaklingsmeðferð felst m.a. í fræðslu, þjálfun, hita- og rafmagnsmeðferð, teygjum, nuddi og liðlosun. Algengt er að sjúklingar séu illa á vegi staddir líkamlega við innlögn og þá á þrekþjálfun í hópi vel við, til að auka úthald og styrk. Hafi sjúkraþjálfun áður verið beitt án tilætlaðs árangurs eru reyndar nýjar leiðir með öðrum áherslum. Einnig er oft nauðsynlegt að sjúklingar breyti lífsstíl sínum til frambúðar, m.a. með reglubundinni hreyfingu, svo að ekki sæki í sama farið aftur.