Sálfræðiþjónusta


No Image Selected
Inga Hrefna Jónsdóttir
Forstöðusálfræðingur
ingah@reykjalundur.is






Hlutverk sálfræðinga í endurhæfingunni á Reykjalundi snýr einkum að sálfræðilegu mati, sálfræðimeðferð, ráðgjöf og fræðslu. Sálfræðilegt mat felur meðal annars í sér mat á andlegri líðan, persónuleika, vitsmunaþroska, námserfiðleikum, ADHD, taugasálfræðilegum þáttum eða vitrænni getu með tilliti til styrkleika og veikleika. Einnig taka sálfræðingar þátt í teymisfundum, markmiðsfundum, fjölskyldufundum, fræðslu til vinnustaða eða skóla, sinna forviðtölum og eftirfylgd og koma að þróunarvinnu og rannsóknum. Sérfræðingur í taugasálfræði sér um taugasálfræðilegt mat. Sérfræðingar í klínískri sálfræði veita handleiðslu til annarra sálfræðinga og HAM-meðferðaraðila.

 

Andleg vanlíðan sem oft er fylgifiskur langvinnra veikinda og slysa getur haft hamlandi áhrif á framgang endurhæfingar. Hjá sumum skjólstæðingum er andleg vanlíðan svo sem kvíði og þunglyndi aðalástæða þess að þeir þurfa á endurhæfingu að halda. Hjá öðrum eru sálræn einkenni afleiðingar langvinnra verkja, offituvandamála eða þeirrar aðstöðu sem þeir búa við. Hlutverk sálfræðinga í endurhæfingu er mjög mikilvægt í því ferli að styðja einstaklinginn til sjálfsbjargar og betri lífsgæða.