Hjarta- og lungnarannsóknarstofa
Rannsóknarstofan er búin fullkomnum tækjabúnaði til að meta starfsemi hjarta og lungna.
Álagspróf af ýmsu tagi eru helsti þátturinn í starfi rannsóknarstofunnar. Langflest prófin eru gerð til að meta þrek og líkamlegt ástand hjarta- og lungnasjúklinga fyrir og eftir endurhæfingu, en auk þess er þeim oft beitt til sjúkdómsgreiningar. Próf þessi eru mismunandi að gerð, allt frá einföldum sex mínútna gönguprófum til viðamikilla og flókinna prófa þar sem öndunarloft er mælt og efnagreint og teknar blóðprufur úr slagæð. Í hverju tilviki fyrir sig er metið hvers konar álagspróf skuli gert. Auk starfsfólks rannsóknarstofu er læknir ávallt viðstaddur álagspróf og fyllsta öryggis er gætt í hvívetna.
Annar mikilvægur þáttur í starfinu eru öndunarmælingar. Með þeim er hægt að meta hvort til staðar sé teppu- eða herpusjúkdómur í lungum og ef svo reynist vera, á hve háu stigi sjúkdómurinn er. Mælingarnar sem um ræðir eru allt frá einföldum blástursprófum til flóknari lungnarúmmálsmælinga og loftdreifiprófa.
Ofangreindar rannsóknir eru eingöngu gerðar samkvæmt beiðni frá lækni.