Iðjuþjálfun

No Image Selected
Lilja Ingvarsson
yfiriðjuþjálfi
liljaing@reykjalundur.is

Þörf er á iðjuþjálfun þegar fólk á í erfiðleikum með að sinna daglegri iðju á fullnægjandi hátt. Algengt er að færni við iðju breytist í kjölfar sjúkdóms eða annars áfalls. Fólk getur átt í erfiðleikum með að annast sig og sína, vinna heimilisstörf, stunda atvinnu utan heimilis eða njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Iðjuþjálfun er skjólstæðingsmiðuð, sem þýðir að skjólstæðingurinn kýs sér viðfangsefni og vinnur síðan markvisst að því að ná fullnægjandi færni í þeirri iðju í samvinnu við iðjuþjálfa . Til að efla færni beita iðjuþjálfar fræðslu, kennslu, ráðgjöf, aðlögun umhverfis, útvegun hjálpartækja og þjálfun.

Meðal þess sem í boði er í iðjuþjálfun á Reykjalundi er bak- og verkjaskóli, streitustjórnunar- og slökunarnámskeið og kennsla í orkusparnaði og vinnuhagræðingu. Lögð er áhersla á að fólk læri að finna sín mörk og stefni að því jafnvægi í daglegu lífi sem bætir heilsu og eykur vellíðan. Ef færnivandi er til kominn vegna samspils einstaklings og umhverfis er farið heim eða á vinnustað skjólstæðings og kannað hvort þörf sé á breytingum eða hjálpartækjum. Þjálfunin felst m.a. í að skjólstæðingurinn auki hæfni sína (styrk, liðleika, einbeitingu) og tileinki sér nýjar aðferðir við að fást við athafnir og verk sem hann þarf að sinna. Þannig að hann verði fær um að uppfylla hlutverk sín eða stunda áhugamál og tómstundaiðju eftir útskrift af Reykjalundi.