Hjúkrun

Fólk sem kemur í endurhæfingu endurspeglar samfélagið allt.  Það getur haft margvísleg andleg, líkamleg og félagsleg vandamál, en meginmarkmið endurhæfingarhjúkrunar er að einstaklingar geti notið þeirra lífsgæða sem heilsa þeirra og aðstæður leyfa.  Gildi Reykjalundar, Frumkvæði - Virðing - Árangur eru höfð að leiðarljósi í starfinu.   Á Reykjalundi vinna hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðstoðarfólk, sem eru hluti af teymi í endurhæfingu. Skilgreindur vinnutími þeirra er allur sólahringurinn, á vöktum, þar sem tekið er á þeim vandamálum sem upp geta komið. Skipulögð hjúkrunarmeðferð byggist á greiningu og meðferðaráætlun. Val á bjargráðum við vanda og kennsla í að beita þeim er stór hluti af störfum hjúkrunarfræðinga, sem og tengsl, fræðsla og stuðningur við aðstandendur sjúklinga.

Í endurhæfingu skiptir virk þátttaka sjúklingsins miklu máli til að árangur náist. Hjúkrunarfólk mætir hverjum og einum þar sem hann er staddur heilsufarslega séð og miðar að því að efla áhugahvöt hans og trú á því að eigin frumkvæði hafi sitt að segja.   Heimilislegt, hvetjandi, rólegt og öruggt umhverfi skiptir máli. Við innskrift fær sjúklingur fyrsta viðtal við sinn umsjónarhjúkrunarfræðing sem fylgir honum síðan eftir allan endurhæfingartímann.  Hjúkrunarmeðferð er skjólstæðingsmiðuð og einstaklingshæfð.  Horft er á hvaða markmið sjúklingurinn setur sér í meðferðinni, hvað hann sér sem sinn þátt í endurhæfingunni og hvernig lífi hann vill og ætlar sér að lifa eftir að meðferð í endurhæfingu er lokið.  Stuðningur, fræðsla og sérhæfð hjúkrun eru mikilvægir þættir í meðferðarsambandi sjúklings og hjúkrunarfræðings. 

Hjúkrun í endurhæfingu byggist á hugmyndafræði um heildræna, einstaklingshæfða hjúkrun, sem er nútímaleg aðferð og tekur mið af kenningum um umhyggju og siðfræði. Lögð er áhersla á að horfa til heilbrigðis.  Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar styðja sjúklinginn til þess að taka á þeim þáttum sem hafa áhrif á heilbrigði hans, með því að vinna með lífsstíl og mögulegar lífsstílsbreytingar.  Þar má nefna svefn og svefnvenjur, slökun, næringu (s.s. offitu, vannæringu eða óreglu í mataræði), tóbaksnotkun, að þekkja mörk sín í daglegu lífi og starfi, félagslega virkni, sjálfsumönnun og sjálfsumhyggju.

 

Hjúkrunarfræðingar á Reykjalundi hafa þróað hjúkrunarskráningu samkvæmt tilmælum Landlæknisembættisins og eru virkir í rannsóknavinnu og þróun mælitækja í hjúkrun í samstarfi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri.