Leikfimi
Leikfimi 1
Í leikfimi 1 situr fólk eða stendur við stól. Gerðar eru liðkandi og styrkjandi æfingar og lögð áhersla á góða samverustund, samhæfingu, líkamsvitund og æfingar sem koma að gagni í daglegu lífi. Ávallt er endað á háls- og herðaæfingum. Í leikfimi eru oft notuð teygjubönd, prik, pokar, boltar og önnur hjálpartæki.
Leikfimi 1 tekur 20-30 mín.
Leikfimi 2.
Eftirfarandi er stutt lýsing á æfingatímunum sem taka 30-45 mín hver.
Mánudagar
Upphitun með ýmsum æfingum, gengið, sveiflað, auðveld spor o.s.frv. Dýnuæfingar 15-20 mín. Teygjur og slökun.
Þriðjudagar
Létt upphitun með ýmsum æfingum. Þrekhringur; hér reynir á styrk og þol og æfingar ýmist gerðar sitjandi, standandi eða á dýnu. Margar æfingarnar eru með léttari eða þyngri útfærslu. Teygjur og slökun.
Miðvikudagar
Upphitun með ýmsum æfingum, gengið, sveiflað, auðveld spor o.s.frv. Dýnuæfingar 15-20 mín. Teygjur og slökun.
Fimmtudagar
Létt upphitun með ýmsum æfingum. Þolhringur; hér er reynt að halda uppi hæfilegu álagi í æfingum sem allar eru gerðar standandi og þjálfa upp þol, samhæfingu og jafnvægi. Teygjuæfingar.
Föstudagar
Frjáls tími sem getur verið létt leikfimi með liðkandi æfingum, bolti, leikir, dans eða ratleikur.