Leiðbeiningar til göngufólks

  1. Veldu þér gönguskó sem passa vel. Skórnir eiga að hafa þykkan fjaðrandi botn, stífan hælkappa og halda vel að fætinum. Ef þú átt vanda til að skæla skó eða misslíta sólunum skaltu hafa samband við sjúkraþjálfara eða heilsuþjálfara sem geta hjálpað þér með val á innleggi eða sérstyrktum skóm. Kauptu þér skó síðdegis því fóturinn þrútnar yfir daginn.

     

  2. Klæddu þig eftir veðri. Húfa og vettlingar eiga við flesta mánuði ársins en í hita er gott að vera í víðum fötum sem "anda".

     

  3. Í upphafi göngunnar er nauðsynlegt að fara rólega, stöðva og teygja létt á fótvöðvum. Þá er haldið af stað og hraðinn aukinn. Þú átt að ganga rösklega en þó ekki svo að þú þurfir að hvíla þig með stuttu millibili. Þeir sem þekkja Borgskalann nota hann en önnur góð regla er að geta talað en ekki sungið. Mundu samt að þú velur ávallt göngu í samráði við heilsuþjálfara eða sjúkraþjálfara.

     

  4. Haltu þig vinstra megin á veginum, göngumenn eiga ekki að mynda breiðfylkingu og fylgdu fyrirmælum göngustjóranna.

     

  5. Gakktu rólega í lok göngunnar til að kæla þig niður. Teygðu alltaf á vöðvum áður en þú ferð inn.

 

Gangi þér vel!

Heilsuþjálfarar og sjúkraþjálfarar Reykjalundi