Hópþjálfun í umsjón heilsuþjálfunar

Hópganga

Göngunni er skipt niður í fjóra hópa og fer hver sjúklingur í hóp við sitt hæfi. Sjá nánar

Leikfimi

Boðið er upp á tvo hópa í leikfimi. Þjálfarar og læknar meta þol og færni sjúklings og senda hann í þá leikfimi sem hentar. Sjá nánar

Boccia

Boccia er góð líkamleg og félagsleg þjálfun sem stunduð er fjórum sinnum í viku í speglasalnum.

Spaðatími

Badminton og borðtennis eru góðar spaðaíþróttir og eru stundaðar í íþróttasalnum klukkan 13.00 – 14.00 frá mánudegi fram á föstudag.

 

Stafganga

Stafgangan er orðin vinsæl almenningsíþrótt og heilsuþjálfarar kenna undirstöðuatriðin á þriðjudögum og fimmtudögum kl 11.00

Reiðhjól

Hjólað er með sjúklingum í nágrenni Reykjalundar en þeir hafa einnig aðgang að hjólum utan hefðbundins þjálfunartíma til kl.22.00.

Bátar

Farið er að Hafravatni á sumrin. Bátar bjóða upp á góða hreyfingu og útiveru og veita oft hreyfihömluðum mikið frelsi.

Sundkennsla

Kennt er fimm sinnum í viku. Baksund hefur verið vinsælt en aðrar sundgreinar eru einnig kenndar.

Einstaklingssund

Heilsuþjálfari fer ofan í laugina með sjúklingi, kennir honum og aðstoðar við æfingar.

Golf, gönguskíði og fjallgöngur

Þessar íþróttir eru stundaðar þegar veður og aðstæður leyfa.