Hópgöngur á Reykjalundi

 

 

Ganga 1

 

Tekur 10-20 mín. Ákveðinn hringur, frá Norðurstofu með húsi, niður stétt að Neðribraut og til baka. Aðrir ganga á stéttinni eða inni; fer eftir veðri og aðstæðum. Markmiðið er að genginn sé einn kílómetri.

Ganga 2

 

Tekur 20-30 mín. Ákveðin tveggja kílómetra leið nánast á jafnsléttu og á götu. Ef veður og aðstæður eru óhagstæðar eru til varaleiðir. Farið er rólega fyrstu mínúturnar, stöðvað og teygt létt á fótvöðvum. Endað mjög rólega og gerðar fótvöðvateygjur.

Ganga 3

 

Tekur 30-40 mín. Vegalengd um 3 kílómetrar en mismunandi leiðir. Frískleg ganga en ekki farið í miklar og langar brekkur. Farið er rólega fyrstu mínúturnar, stöðvað og teygt létt á fótvöðvum. Endað mjög rólega og gerðar fótvöðvateygjur.

Ganga 4

 

Tekur 40-50 mín. Vegalengd um 4 kílómetrar. Rösk ganga þar sem farið er í brekkur. Almennar göngureglur um upphaf, álag og niðurlag gilda.

Sjá einnig:

 

Leiðbeiningar til göngufólks