Heilsuþjálfun

No Image Selected
Lárus S. Marínusson
Yfirheilsuþjálfari
larusm@reykjalundur.is

Hlutverk heilsuþjálfara er að auka færni, kraft og úthald sjúklinga með ýmiskonar hópþjálfun; kynna og efla áhuga fyrir almenningsíþróttum; kynna íþróttagreinar sem stundaðar eru hjá íþróttafélögum fatlaðra og sjá um einstaklingsmeðferð t.d. í vatni og í tækjasal.

Heilsuþjálfarar sjá um leikfimi, göngu, sundkennslu og sundþjálfun. Þeir kenna borðtennis, bogfimi og boccia. Þeir kynna almenningsíþróttir, t.d. gönguskíði á veturna og golf og hjólreiðar á sumrin; taka þolpróf og gera fitumælingar. Þeir bjóða reglulega upp á lengri göngur eða fjallgöngur og á sumrin hafa þeir umsjón með róðraþjálfun á Hafravatni. Heilsuþjálfarar eru einnig með fræðslu um þátt hreyfingar í forvörnum og endurhæfingu.

Aðstaða heilsuþjálfunar er innan sjúkraþjálfunardeildar en starfsemin fer aðallega fram í meðferðarsölum og nánasta umhverfi Reykjalundar.