Félagsráðgjöf

No Image Selected
Magnús Pálsson
Yfirfélagsráðgjafi
magnusp@reykjalundur.is

Fólk sem þarfnast endurhæfingar vegna sjúkdóms eða fötlunar býr við misjafnar félagslegar og fjárhagslegar aðstæður.

Félagsráðgjafar Reykjalundar vinna með sjúklingum og aðstandendum þeirra að úrlausnum félagslegra vandamála. Þeir veita stuðning í persónulegum málum; upplýsingar um félagsleg réttindi og aðstoð við umsóknir þar að lútandi.

Í endurhæfingu þurfa fjölmargir þættir að haldast í hendur til að meðferðin beri sem bestan árangur. Eitt verkefni félagsráðgjafanna er að hafa milligöngu um og samræma þá þjónustu félagslega kerfisins sem veitt er utan Reykjalundar.

Félagsráðgjafar taka þátt í starfsemi þeirra teyma sem starfrækt eru á Reykjalundi.